Þjóðmál - 01.06.2016, Qupperneq 70

Þjóðmál - 01.06.2016, Qupperneq 70
Gróðurvana auðnir, brennandi sólarhiti, sandbyljir. Angistin hefur sest að snemma í bernsku í sálum hinna harðdrægustu þessara söðulbrúnu manna, araba, og henni verður ekki þaðan vikið. Hinir ósveigjanlegustu kjósa gereyðingastríð, Jihad, í Ijósi aðstæðna. Hryðjuverkasamtökin ISIS eru byggð um hugarástand þess sem velur fórnardauða frammi fyrir því sem sýnist óhjákvæmilegt, að lönd araba falli hvert af öðru lönd í faðm fyrirtækja sem kaupa sig inn á þau með rafrænum fjárdagsflutningum fyrir jarðolíu sem dælt er upp úr borholum í sandauðnum þessara landa svo að aldrei verður hlé á þau ár eða áratugi sem brunnarnir endast og þar með olíuauðurinn. Þegar svo er komið hefur alþýðan á mark- svæðinu tekið við sér og er orðin ágeng við yfirvöld í heimalandi sínu með kröfum um frelsi á vestræna vísu, um einkalíf og atvinnu sem staðið geti undir vestrænum lífsstíl. Hvort tveggja kröfur sem leiða af sér sívax- andi togstreitu milli almennings og yfirvalda í heimalandinu uns upp úr síður svo sem nú í Sýrlandi. Þaðan streymir flóttafólk til Evrópu í von um nútímalegri lifnaðarhætti en þeir eiga færi á í heimalandi sínu hvort sem væri í stríði eða friði. Gróðurvana auðnir, brennandi sólarhiti, sandbyljir. Angistin hefur sest að snemma í bernsku í sálum hinna harðdrægustu þessara söðulbrúnu manna, araba, og henni verður ekki þaðan vikið. Hinir ósveigjanlegustu kjósa gereyðingastríð, Jihad, í Ijósi aðstæðna. Hryðjuverkasamtökin ISIS eru byggð um hugarástand þess sem velur fórnardauða frammi fyrir því sem sýnist óhjákvæmilegt, að lönd araba falli hvert af öðru lönd í faðm fyrirtækja sem kaupa sig inn á þau með rafrænum fjárdagsflutningum fyrir jarðolíu sem dælt er upp úr borholum í sandauðnum þessara landa svo að aldrei verður hlé á þau ár eða áratugi sem brunnarnir endast og þar með olíuauðurinn. Og hvað svo? 4. Velkomin til Dubaí! Olíuframleiðsla þessa konungdæmis við Persaflóa er þessi árin um 2% af framleiðslu hinna olíuauðugu Miðausturlanda. Borgin stendur í sandauðninni við vestanverðan flóann. Hún er reist fyrir olíuauð undanfarinna áratuga í anda austurlensks ævintýris, upp úr 1992, þar um slóðir sem arabar fóru um á úlföldum sínum og höfðu gert allt frá tímum 1001 nætur, þessa heimsþekkta þjóðsagna- safns kynstofnsins. Annar náttúruauður en olía er enginn á þessum fjarlægu slóðum, ekki frekar en víðast hvar annars staðar í löndum araba og varla annað frá náttúrunnar hendi en gulur sandurinn. Orsökin að því að nú hefur verið reist þarna nútímaborg í sandauðninni við Persaflóa í anda vestrænn- ar ævintýraþrár og auðsældar, er sú, að fyrir tveim til þremur áratugum var við völd konungur í Dubaí sem hafði hugvit og dirfsku til að ákveða fyrir þjóð sína að byggð yrði borg fyrir olíuauðinn í anda þess sem glæsilegast væri á heimsvísu með fyrir augum að yrði að ferðamannaborg. Rannsóknir höfðu þá sýnt, að olíuauður Dubaí myndi þrjóta í fyrirsjáanlegri framtíð. Konungurinn lét leiða saman nafn- togaða forystumenn hvaðanæva að úr heimsbyggðinni til að reisa ævintýraborg sem Vesturlandabúar höfðu séð hylla uppi yfir eyðimörkum Austurlanda um marga alda skeið fyrir vitnisburð vestrænna ævintýramanna og sögur 1001 nætur. Pen- ingar leita þangað sem peningar eru fyrir. Æðstráðandinn í Dubaí lét kalla til heims- kunna húsameistara til að teikna hús, bygg- ingameistarar voru kvaddir til að reisa húsin, hann lét koma upp hinni bestu aðstöðu fyrir keppnisfólk til að stunda íþróttir sem engum manni hafði fyrr dottið í hug að tengja eyðimerkurlifnaði; svo sem krikket, þessa bresku þjóðaríþrótt. Ekkert var til sparað af 68 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.