Þjóðmál - 01.06.2016, Side 78

Þjóðmál - 01.06.2016, Side 78
„Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn. Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri." SteingrímurJ. Sigfússon á Alþingi 2003. um„rétt almennings til þjóðaratkvæða- greiðslna". Þetta var í takt við það sem fyrri landsfundir höfðu ályktað en fyrir þingkosn- ingar sagði meðal annars í stjórnmálaályktun: „Samfylkingin leggur höfuðáherslu á lýðræðismál með auknu íbúalýðræði og réttur almennings til þjóðaratkvæða- greiðslna verði tryggður í stjórnarskrá." Stjórnarflokkarnirog helstu forystumenn þeirra voru samstíga í loforðum um aukið lýðræði og þá ekki síst er varðar rétt almenn- ings að setja álit sitt á einstökum málum í þjóðaratkvæðagreiðslum. í ályktun lands- fundarVinstri grænna árið 2007 sagði: „Fulltrúalýðræðinu er hreint ekki ógnað af því að þjóðin greiði öðru hvoru atkvæði um tiltekin mál. Nauðsynlegt er að setja inn í almenn lög eða stjórnarskrá ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur, til að mynda aðtiltekið hlutfall þjóðarinnargeti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu með undirskriftum eða viðlíka hætti." „Treystum við ekki þjódinni?" Árið 2006 gaf Steingrímur J. út bókina Við öll - íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum. Þar fjallaði hann meðal annars um beint lýðræði og mikilvægi þjóðaratkvæða. Steingrímur hélt því fram að breyta ætti stjórnarskrá og setja inn ákvæði um rétt almennings að krefj- ast þjóðaratkvæðagreiðslu: „Slíkur afdráttarlaus og stjórnarskrárbund- inn réttur þjóðarinnar stangast ekki á við það að í stjórnarskrá sé jafnframt kveðið á um möguleika tiltekins allstórs minnihluta þingmanna og/eða þjóðkjörins forseta til að skjóta málum til þjóðarinnar." Skoðanir hans í bókinni voru í góðu sam- ræmi við það sem hann sagði á Alþingi 4. mars 2003. Þá gerði hann grein fyrir tillögu sem hann flutti ásamt félögum sínum í VG, um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers í Reyðarfirði: „Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn. Stundum heyrist að vísu ein- staka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutn- ingur sem ég heyri." í áðurnefndri bók taldi Steingrímur rétt að setja inn í stjórnarskrá ákvæði um þjóðar- atkvæði: • 20-30 þúsund manns geti krafist þjóðar- atkvæðis • 27 þingmenn hið minnsta geti krafist þjóðaratkvæðis Stjórnarskránni hefur ekki verið breytt og því engin leið að efna til þjóðaratkvæðis nema að meirihluti þingmanna ákveði slíkt eða að forseti synji lögum staðfestingar. Skilyrði Steingrím uppfyllt Þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti tók ákvörðun um að synja í annað sinn lögum um ríkisábyrgð á skuldum Landsbankans - lcesave, lá tvennt fyrir: • Yfir 41 þúsund landsmanna skrifuðu undir áskorun til forseta að hafna lcesave- lögunum. • 30 þingmenn greiddu atkvæði með því að 76 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.