Þjóðmál - 01.06.2016, Side 79

Þjóðmál - 01.06.2016, Side 79
MORGUNBLAÐID LAUGAROAGUR G. MARS ZOIO Fréttir INNLENT Þau ætla ekki að kjósa í dag • Jóhanna segir að ríMsstjómin hafi ekki langan tíma til að klára málið Morxunblm'iAE rnir Réðherrar Forsætisi-áðherra og Ijiírniálaráðherra ætla ekki að kjósa í dag. Eftir Egil Óiafsson egol@mbl.is „ÞAÐ er lýðræðislegur réttur hvers og eins að ákveða hvort hann fer á kjörstað, segir já, nei eða skil- ar auðu. Ég ætla hvorki að hvetja né letja fólk til að fara á kjörstað,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðheiTa, en hún ætlar ekki að taka þátt í þjóðaratkvæða- greiðslunni um Icesave-lögin. Fjár- málaráðherra er sama sinnis. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagðist hafa velt gildi þjóðaratkvæðagreiðslunnar talsvert fyrir sér. „Minn hugur er svipaður og forsætisráðherra. Ég sé takmarkaðan tilgang í því að taka þátt í þessari kosningu. Til þess að svona kosning þjóni ein- hverjum tilgangi þarf hún að mínu mati að uppfyila tvennt, það þurfa að vera í boði einhverjir skýrir val- kostir og það þarf að vera í mögu- legri útkomu kosningarinnar ein- hver lausn á einhverju viðfangsefni. Hvorugt er í boði í þessu tilvild eins og nú er málum háttað." Samninganefnd íslands er á leið heim og standa vonir til þess að viðræður hefjist að nýju í næstu viku. Steingrfmur sagðist hafa lagt áherslu á það við Breta og Hol- lendinga að ísland væri tilbúið til að halda áfram viðræðum. í gær- kvöldi fékk hann staðfestingu á þvi að þeir væru tilbúnir til að halda áfram viðræðum. „Það er orðið Ijóst að við munum ekki ná niðurstöðu í samningaum- leitunum okkar við Breta og Hol- lendinga fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu. Ég held þó tvímælalaust að bilið hafi minnkað verulega milli aðila. Það er óumdeilt, að þó að við höfum ekki náð samningi höfum við náð verulegum árangri. Þó að það verði gert hlé á viðræðum núna meðan þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram þá Íegg ég mikla áherslu á að aðilar komi saman eftir helgi og taki upp viðræður þar sem frá var horfið. Við verðum auðvitað að vona að staðan verði ekki þyngri eftir helgina og við náum niður- stöðu sem er orðið mjög brýnt. Við höfum orðið mjög lítinn tíma því að áhrifln af þessu eru mjög mikil á efnahags- og atvinnulífið," sagði Jóhanna. Steingrímur og Jóhanna sögðu að atkvæðagreiðslan myndi ekki hafa nein áhrif á stjórnarsamstarf- ið. Jóhanna var spurð hvaða umboð ríkisstjómin hefði frá þjóðinni til að leysa málið í Ijósi þess að nú væri verið að gera þriðju tilraun til að leysa það. „Hún hefur alveg um- boð til að leysa þetta mál að mínu viti, en hún hefur ekki langan tíma til þess.“ Steingrímur sagði að það yrði ís- landi mjög dýrt ef þetta mál myndi dragast lengi enn. „Við höfum ekki efni á því. Við höfum ekki stöðu til þess að láta þetta dragast mjög lengi með öllum skaðlegu áhrifun- um sem það hefur í efnahagslegu tilliti." Steingrímur sagði að enn bæri talsvert á milli í deilunni. Nokkur lagaleg atriði væru óklár, auk hinna efnahagslegu þátta sem vægi þyngst í málinu. „Það er lýðræðislegur réttur hvers og eins að ákveða hvort hann fer á kjörstað, segirjá, nei eða skitar auðu. Ég ætla hvorki að hvetja né letja fótk til að fara á kjörstað,"sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, ísamtaii við Morgunblaðið 6. mars 2010- sama dag og fyrri þjóðaratkvæðagreiðsian um lcesave-samningana var haldin. SteingrímurJ. Sigfússon tók i sama streng. vísa lcesave-lögunum í þjóðaratkvæði. Þannig var forsetinn í raun að fylgja eftir hugmyndum Steingríms J. Sigfússonar um þjóðaratkvæði. Skilyrðin sem fyrrverandi leiðtogi VG taldi að ættu að vera fyrir hendi til að efnt væri til þjóðaratkvæðagreiðslu voru uppfyllt. En Steingrímur fagnaði ekki heldur þvert á móti reyndi hann ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur og fleirum að gera lítið úr atkvæðagreiðslunni. Hún hefði ekkert gildi. Þjóðaratkvæðagreidsla sögð dapurleg Forystumenn ríkisstjórnarinnar höfðu tækifæri til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um lcesave áður en kom til þess að forseti þeitti synjunarvaldi. Pétur heitinn Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til að lög um ríkisábyrgðina skyldu ekki öðlast gildi nema því aðeins að meirihluti kjósenda samþykkt ábyrgðina í sérstökum kosningum. Tillaga Péturs var felld 30. desember 2009 með stuðningi allra þingmanna Samfylk- ingarinnar og 12 þingmanna Vinstri grænna. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, Ijármálaráðherra, greiddu atkvæði gegn tillögunni. í aðdraganda fyrri þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar gerðu bæði Jóhanna og Steingrímur lítið úratkvæðagreiðslunni. Eftir ríkisstjórnar- fund 26. febrúar 2010 sagði Steingrímur að óvíst væri hvort hann kysi.„Eigum við ekki bara að hafa spennu í þessu máli," sagði Steingrímur aðspurður. Hann taldi þjóðar- atkvæðagreiðsluna vera„dapurlega" og þjóna takmörkuðum tilgangi. Jóhanna Sigurðardóttir svaraði fyrirspurn Bjarna Benediktssonar um atkvæðagreiðsl- una á þingi 1. mars 2010 og sagði: „Hitt er annað mál að þegar fyrir liggur tilboð frá Bretum og Hollendingum um samning sem er með 70 milljarða lægri greiðslubyrði en sá samningur sem greiða á atkvæði um, veltir maður auðvitað fyrir sér um hvað á að greiða atkvæði ef þetta er raunverulega þjóðaratkvæðagreiðsla um samning sem enginn berst fyrir lengur. Maður veltir fyrir sér: Er þetta ekki hálf- gerður hráskinnaleikur? Er þessi þjóðar- atkvæðagreiðsla ekki marklaus þegarfyrir liggur annað tilboð á borðinu sem við gætum fengið?" Morgunblaðið greindi frá því tveimur dögum eftir að Jóhanna gaf litið fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna að Lee Buchheit, ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016 77

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.