Þjóðmál - 01.09.2018, Page 11
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 9
Þar ræður miklu stefna Reykjavíkurborgar
undir forystu Samfylkingarinnar og annarra
vinstriflokka.
Stefnan um þéttingu byggðar er fjandsamleg
ungu fólki sem vill eignast sína fyrstu íbúð.
Bjarni vék einnig að því að nú horfði til þess
í fyrsta skipti í sögu Landsvirkjunar að ríkis
sjóður fengi miklar arðgreiðslur af starfsemi
hennar. Ekki væri mjög langt frá því að menn
hefðu hreinlega haft áhyggjur af fjárhags
stöðu Landsvirkjunar. Nú hefði fyrirtækið
greitt mikið upp af skuldum, ráðist í nýjar
virkjanir og fjölgað viðskiptavinum.
Vill fjármálaráðherra að arður af orku
vinnslunni verði lagður til hliðar í Þjóðarsjóð.
Verður frumvarp um sjóðinn væntanlega flutt
á þessu þingi.
III.
Í ágreiningi milli stjórnarflokkanna má greina
línur milli ólíkra stjórnmálaskoðana, reistar
á ágreiningi um hlutverk ríkisins andspænis
framtaki einstaklinga. Að þessi ágreiningur
skuli látinn bitna á sjúklingum með lengingu
biðlista er óviðunandi. Línur eru ekki eins
skýrar þegar litið er til deilu um annað mál
sem borið hefur hátt undanfarið, það er hvort
innleiða eigi hér svonefndan 3. orkupakka
ESB.
Línurnar eru meðal annars óljósar vegna þess
að á liðnum vetri var efni þessara tilskipana
ESB, hluta EESsamningsins, kynnt á alrangan
hátt. Þessi ranga kynning leiddi meðal annars
til þess að til ágreinings kom á landsfundi
sjálfstæðismanna 16. til 18. mars 2018.
Í ályktun fundarins um atvinnumál segir:
„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara fram
sali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði
til stofnana Evrópusambandsins.“
Hver sá sem kynnir sér 3. orkupakkann hlýtur
að spyrja sig hvernig unnt er að fella ákvæði
hans undir tilvitnuðu orðin úr ályktun inni.
Uppfærsla orkustefnu ESB af einu stigi á
annað breytir í raun engu fyrir Ísland.
Orða lagið í ályktuninni hefur verið notað
sem hótun gegn þingmönnum flokksins.
Oftúlkun á efni 3. orkupakkans og áhrifum
hans fylgja gjarnan yfirlýsingar sem fela í sér
hótun um að berjast fyrir úrsögn úr EES verði
pakkinn innleiddur.
Tveir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins,
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra
og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra,
hafa boðað framlagningu innleiðingarmála
vegna 3. orkupakkans á þingi í vetur. Verður
að vona að þingmenn verði þá upplýstari
um málið en landsfundarfulltrúar voru um
miðjan mars 2018.
Innleiðing þessa EEStexta hefur ekki í för með
sér nein þáttaskil í samskiptum Íslands og ESB.
Meginfirra sumra andstæðinga innleiðingar
innar er að hún skyldi Íslendinga til að setja
hér í samband sæstreng til flutnings raforku
til ESB. Það þurfi ekki einu sinni fyrir fram
samþykki íslenskra stjórnvalda til að ráðist sé
í að leggja sæstrenginn. Tenging Íslands við
evrópska raforkunetið er eðlilega forsenda
þess að ákvæði í 3. orkupakkanum um aðild
að sameiginlega evrópska raforku kerfinu verði
virk. Ekkert gerist sjálfkrafa í því efni.
Fastur liður í umræðum á alþingi um ríkisfjármál undir forystu sjálfstæðismanns
er að minna hann á gamalt kjörorð flokksins: Báknið burt! Frá því að það var
kynnt til sögunnar á áttunda áratugnum hefur alltaf verið til þess vitnað við
framlagningu fjárlagafrumvarps sjálfstæðismanns.