Þjóðmál - 01.09.2018, Side 15

Þjóðmál - 01.09.2018, Side 15
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 13 Bandaríski seðlabankinn kemur til bjargar Þann 9. ágúst 2017 kom fréttatilkynning frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þar sem því var lýst yfir að fjármálakrísuna 2008 mætti fyrst og fremst rekja til fasteignalána í Bandaríkjunum sem hefðu valdið efnahags­ samdrættinum í Evrópu. Tímasetning frétta­ tilkynningarinnar er merkileg fyrir þær sakir að tíu árum fyrr upp á dag, 9. ágúst 2007, komu fram fyrstu vísbendingar þess efnis að efnahagshrunið væri ekki staðbundið heldur alþjóðlegur vandi. Það var þegar franski bankinn BN Paribas tilkynnti að hann myndi frysta fjárfestingarsjóði hjá sér vegna áhættu er tengdist fjárfestingum þeirra í banda­ rískum skuldabréfum, og um svipað leyti neyddist Seðlabanki Evrópu (ECB) til að setja 130 milljarða Bandaríkjadala inn í evrópska bankakerfið. Vandinn var vissulega ekki aðeins bundinn við skuldabréf tengd fasteignalánum í Banda­ ríkjunum því ýmis heimatilbúin vanda mál voru til staðar í Evrópu, eins og húsnæðis­ bólan á Írlandi og Spáni og ósjálfbær skulda­ staða ríkissjóðs í löndum eins og Grikklandi og Ítalíu. Þessu til viðbótar hafði safnast upp gífurleg gjaldeyrisáhætta í eignasöfnum margra evrópskra banka sem höfðu safnað verulegum skuldum í erlendri mynt. Að mati BIS hefðu evrópskir bankar þurft að fjárma­ gna allt upp í 1,2 billjónir Bandaríkjadala til að loka þeirri gjaldeyrisskekkju sem hafði myndast á efnahagsreikningum þeirra – í eðlilegu umhverfi hefðu bankarnir getað endurfjármagnað sig á millibankamarkaði en á árinu 2008 var sá markaður nánast lokaður. Seðlabankinn í Bandaríkjunum áttaði sig á þessum vanda og óttaðist að evrópskir bankar myndu selja bandarískar eignir á bruna útsölu til að mæta skuldbindingum sínum áður en langt um liði. Á bak við tjöldin hóf því bandaríski seðla­ bankinn að útbúa björgunarpakka til að tryggja fjármögnun til þeirra banka. Seðla­ bankinn í Bandaríkjunum var því í raun skyndilega orðinn lánveitandi til þrautavara fyrir aðra erlenda seðlabanka í heiminum og sem dæmi fékk evrópski seðlabankinn nær 2,5 billjóna Bandaríkjadala lánalínu frá seðla­ banka Bandaríkjanna. Þótt farið hafi verið leynt með þá lánveitingu á sínum tíma má þakka þeirri lánafyrirgreiðslu sem evrópska seðlabankanum bauðst frá bandarískum kollegum sínum það að fjármála kreppan varð ekki enn dýpri og enn alvarlegri en raunin varð, og þá einkum í Evrópu. Evrópski seðlabankinn var ekki sá eini sem nýtti sér lánalínu Bandaríkjanna heldur einnig þrettán aðrir seðlabankar. Hins vegar hafnaði bandaríski seðlabankinn tveimur umsækjendum um fyrirgreiðslu, hverjir það voru hefur ekki verið gefið upp en íslenski seðlabankinn er þó annar þeirra. Tvívegis leitaði íslenski seðlabankinn til hins bandaríska um gerð gjaldeyrisskipta­ samninga á árinu 2008. Seðlabankanum var hafnað í bæði skiptin og rökstuðningurinn var sá að fjármálakerfið væri allt of stórt og slíkir samningar myndu ekki skila tilætluðum árangri . Það sem er áhugavert við þessa sögu er ekki aðeins að enn er deilt um hvar fjármálakrísan hófst heldur einnig að ýmsum aðgerðum var verið að beita bak við tjöldin sem fyrst nú eru að koma fram, aðgerðir sem voru til þess fallnar að lágmarka skaðann og gegndi bandaríski seðlabankinn þar mikilvægu hlutverki. Margir hagfræðingar, þar á meðal Paul Krugman, spáðu því að Bandaríkjadalur myndi missa stöðu sína sem einn mikil vægasti forðagjaldmiðill í heimi og hrynja í virði. Það gerðist þó ekki heldur þvert á móti – staða dollarans hefur styrkst eftir krísuna.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.