Þjóðmál - 01.09.2018, Side 21

Þjóðmál - 01.09.2018, Side 21
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 19 öllum innistæðum írskra banka. Það leiddi til þess að peningar hættu að flæða úr írska bankakerfinu og fjárstreymið snerist við. Því voru góð ráð dýr hjá öðrum Evrópulöndum, sem hvert af öðru ákváðu að fylgja þessu vafasama fordæmi, því ellegar stæðu þau frammi fyrir fjármagnsflótta. Eftir stendur evrópskt bankakerfi sem féll ekki en er gríðar lega stórt og veikburða og gnæfir yfir öll þök í áhættu. Íslendingar tóku hins vegar réttar ákvarðanir að þessu leyti, því þeir áttu ekki annarra úrkosta völ. Þegar í harðbakkann slær þarf oft að taka sársaukafullar ákvarðanir sem til skamms tíma eru óvinsælar en eru skynsamlegar til lengri tíma. Stjórnmálamenn og embættis­ menn eru almennt ólíklegir til að taka slíkar ákvarðanir þegar fjármálakerfi verða fyrir áföllum, því afleiðingar áfallanna eru svo víðtækar. Ráðamenn hafa meiri hvata til að fresta vandanum en að taka á honum. Á þetta hefur Mervyn King, fyrrverandi seðla­ bankastjóri Bretlands, m.a. bent í umfjöllun sinni um fjármálakreppuna. Hvað tapast við gjaldþrot Strax í Verslunarskólanum hlaut ég fræðslu um gjaldþrot. Mér eru minnisstæð eftir farandi ummæli kennarans, Friðriks Eysteinssonar: Við gjaldþrot eru framleiðslutæki, starfsmenn og viðskiptavinir enn til staðar. Hins vegar glatast „stjórnunarhæfileikar“. Farið hefur fé betra. Það getur verið eina leiðin til að koma breytingum fram á stjórnun fyrirtækja að setja þau í þrot. En fyrst allt annað stendur eftir er opnað fyrir nýja stjórnendur með meiri hæfileika til að koma að málum. Það er jákvætt. Gjaldþrot eru því eðlileg í markaðs hagkerfi og leið til þess að bæta stjórnun, sem aftur minnkar sóun, eykur verðmætasköpun og þar með lífsgæði. Hjá hinu opinbera er málum því miður sjaldnast háttað á þennan veg. Þá er bara seilst lengra ofan í vasa almennings ef endar nást ekki saman í rekstri. Almenningur þolir takmarkað af slíkum rekstri án þess að lífs kjörin hrynji. Kristindómur án helvítis Kyle Bass, fjárfestir í Texas, sem varð hvað frægastur fyrir að sjá fyrir hrun undirmálslána, segir að markaðshagkerfi án gjaldþrota sé eins og kristindómur án helvítis. Þá sé búið að taka í burtu hvatann til að standa sig, sem leiði af sér algera óreglu. Annar mætur maður, Eugune Fama, hagfræði prófessor í Chicago og nóbels­ verðlaunahafi, er á sama máli og er algerlega mótfallinn því að ríkið gangist í ábyrgð fyrir fjármálafyrirtæki eða fyrirtæki yfir höfuð. Hann segir að kapítalismi með ríkisábyrgð sé alger öfugþróun. Þessi vísdómur á jafnt við um gjaldþrot fjármálafyrirtækja og annarra fyrirtækja á markaði. Reynsla okkar Íslendinga við fall íslensku bankanna árið 2008 er sönnun þess. Allt tal um nauðsyn þess að hafa lánveitanda til þrautavara í fjármála kerfinu á ekki rétt á sér samkvæmt reynslu okkar Íslendinga. Ýmsir virðast þó við sama heygarðshornið, samanber skýrslu sem gerð var fyrir forsætis­ ráðuneytið frá 5. júní um framtíð íslenskrar peningastefnu. Þar er því slegið upp sem forsendu að lánveitandi til þrautavara sé til staðar á íslenskum fjármála markaði. Bankakerfið eftir hrun var nánast alfarið í eigu erlendra aðila. Hvað vit var í því að íslenskur almenningur gengist í ábyrgð fyrir slíkt kerfi? Enginn virtist spyrja sig þessarar einföldu en sjálfsögðu spurningar. Svarið liggur í augum uppi ætli Íslendingar á annað borð að draga lærdóm af biturri reynslu sinni frá hruninu 2008. Í þróuðu lýðræðisríki á ekki að treysta á embættis­ og stjórnmálamenn þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir undir gríðarlegri tímapressu. Við höfum tvö dæmi um afleitar ákvarðanir af þessu toga. 6

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.