Þjóðmál - 01.09.2018, Page 23

Þjóðmál - 01.09.2018, Page 23
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 21 Almenningur átti ekki annan kost en að treysta því að kjörnir fulltrúar á þingi gættu hagsmuna hans. Erlendir kröfuhafar stóðu ekki í þeim sporum. Þeir völdu þá leið að kaupa þjónustu allra ráðgjafa sem voru á lausu. Heildarumfang þrotabúa bankanna var yfir 3.000 milljarðar króna. Hrægamma­ sjóðirnir eru gerðir upp á 15% vöxtum og því var fórnarkostnaður af því að vera fastur með fjármagn á Íslandi yfir 450 milljarðar á ári. Það var því hagkvæmt að verja tugum milljarða í ráðgjafa til þess að vinna að því kröfuhafarnir fengju fjármagnið sem fyrst í hendur. Hrægammasjóðirnir hafa leikið þennan leik oft áður: „Einfaldasta leiðin til að fá kerfið með sér er að kaupa það,“ er leiðarstef þeirra. Embættis­ og stjórnmálamenn fengu engan frið fyrir innlendum ráðgjöfum kröfuhafanna, þar sem hver skýrslan rak aðra og nýtt lögfræð iálit birtist í hverri viku. Allt var gert til að reyna að koma fjármagninu úr landi og hrifsa til sín þann takmarkaða gjaldeyri sem var til í landinu af borðinu, þannig að almenningur sæti eftir gjaldeyrislaus. Almanna tenglar rituðu greinar í blöð og fengu málpípur eins og Vilhjálm Þorsteins­ son, þáverandi gjaldkera Samfylkingar, til að rugla umræðuna. Fjöldi Íslendinga efnaðist vel á slíkum ráðgjafastörfum. Staðan var einföld: Það átti enginn að hafa réttindi umfram aðra. Umræðan var hins vegar sveigð í þá átt, svipað og í Icesave, að við þyrftum að axla ábyrgð, kröfurnar væru forgangskröfur og að eina leiðin væri að afgreiða hrunið með digrum tékka með ríkisábyrgð til þess að geta haldið áfram. Ef þetta hefði orðið niðurstaðan væru lífskjör á Íslandi ekki nálæg því sem nú er og við værum ekki enn komin út úr kreppunni. Í kosningum 2013 steig Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fram og hampaði réttum hagsmunum en úrtölur embættismanna, hagfræðiprófessora og annarra voru sláandi. Sem betur fer hafði sjálfstraust aukist frá því að Icesave var hafnað og því var tekið til við að kanna hver raunverulega staðan væri. Hvaða gjaldeyrir væri í landinu og hvernig væri mögulega hægt að skipta honum svo að ekki væri brotið á rétti neins. Ég skrifaði fjölmargar greinar á árunum 2012­ 2016 um þessi mál og sagði að hreinlegast væri að setja föllnu bankana í þrot. Ekki ætti að taka fram fyrir hendurnar á löggjöfinni með því að íslenska ríkið færi í sérstaka nauðasamninga við þrotabúin. Eðlilegast væri að setja búin í þrot; láta mál fara sína hefðbundnu og lögbundnu leið. Við þrotameðferð er öllum gjaldeyri skipt yfir í krónur og þar með mátti tryggja að kröfu­ hafar stæðu jafnfætis íslenskum almenningi. Allur gjaldeyrir yrði þá hjá Seðlabankanum, en almenningur og fyrirtæki voru skilaskyld, en slitabúin ekki. Ég keypti kröfur á föllnu bankana og fór með þær í héraðsdóm til að knýja bankana í þrot, enda væri fullreynt með slitastjórnir sem höfðu litlu áorkað í yfir fimm ár. Gjaldþrotaleiðin setti pressu á slitastjórnir og kröfuhafa, enda fór það svo að þau borguðu jafnan upp kröfurnar sem ég kom með í dómstóla, til að hindra efnislega meðferð málsins. Ég hvatti því lífeyrissjóði og aðra stóra kröfuhafa til að fylgja fordæmi mínu. Áður en til þess kom höfðu kröfuhafar gert nauðasamninga við ríkið. Niðurstaðan varð að lokum viðunandi. Kröfu­ hafar skildu hátt í 700 milljarða króna eftir í landinu en högnuðust engu að síður vel flestir á viðskiptum sínum. Ísland gat greitt niður skuldir og valið beinu brautina. Við sluppum þarna með skrekkinn. Fyrir Íslendinga var engin ástæða til þess að vera hnípinn eða lítill í sér í samskiptum við kröfuhafa. Allir töpuðu við efnahagsáfallið.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.