Þjóðmál - 01.09.2018, Side 40

Þjóðmál - 01.09.2018, Side 40
38 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Áhersla á frjálslyndi og jafnréttismál Aðspurður hvort að flokkurinn hafi lagað sig að breyttum tímum í samskiptatamálum segir Bjarni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið með mesta virkni allra flokka á samfélags­ miðlum í síðustu tvennum kosningum. „Mér finnst við hafa sett stefnu okkar vel fram, með einföldu og aðgengilegu efni. Að því leytinu til höfum við staðið okkur mjög vel. Ég tel þó að við getum almennt gert betur í að koma skilaboðum okkar áleiðis, og fá allt okkar fólk í lið með okkur,“ segir Bjarni og bætir því við að þetta eigi ekki bara við um skrifstofu flokksins og forystu hans, heldur geti hver og einn ráðherra, þing­ og sveitarstjórnarmenn gert sitt. „Það þarf að flétta þessu saman við dagleg störf stjórnmálamanna, að það verði hluti af vinnunni að segja frá því sem við erum að gera,“ segir Bjarni. „Ég man eftir því að hafa átt samtal við erlendan þingmann fyrir um áratug, sem sagði mér að hún væri farin að nota Facebook til að vera í samskiptum við fólk. Ég hafði þá sjálfur lítið notað þann vettvang og ég man það enn að mér fannst það ákveðið skref að skuldbinda mig til þess. Ég gef mig ekki út fyrir að vera sérfræðingur hér eða virkastur stjórnmálamanna, ég er langt frá því, en á þeim tíma sem liðinn er hefur maður þó áttað sig á því að Facebook og allir þessir samskipta­ miðlar eru mikilvægir en samt ófullnægjandi sem eini vettvangurinn til þess að eiga í sam­ skiptum. Hefðbundnir fjölmiðlar og tækifærin sem í þeim felast skipta enn miklu máli.“ En hvað með skilaboðin sem flokkurinn sendir, t.d. hvað varðar jafnrétti og frjálslyndi? Nú hefur smáflokkurinn Viðreisn reynt að nota þessi hugtök óspart, en hefur sá flokkur kannski eitthvað til síns máls, t.d. hvað varðar frjáls­ lyndi, þegar Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki í gegn mál eins og frjálsa sölu áfengis, svo tekið sé dæmi, og virðist alltaf gefa afslátt af slíkum málum þegar semja þarf um þinglok? „Fyrst þú nefnir áfengisfrumvarpið verð ég að segja að ég fann ekki mikla löngun frá Viðreisn til að klára það mál þegar við vorum með henni í ríkisstjórn,“ segir Bjarni. „Það verður líka að segjast eins og er að það var ekki einhugur um það mál í okkar röðum. Í víðara samhengi sýnist mér að forysta Viðreisnar og þingmenn hennar séu aðallega í því að tala um frjálslyndi en það fari minna fyrir tillögum og verkum. Svo er það spurning í hverju fólk telur frjálslyndi felast. Mér þykir það til dæmis ekki frjálslynd stefna að tala stöðugt fyrir upptöku nýs gjaldmiðils eða inngöngu í Evrópusambandið og þar með flóknara regluverki og frekara framsali full­ veldis. Það hefur einfaldlega ekkert með frjálslyndi að gera. Það er líka ákveðin firra þegar rætt er um landbúnaðinn að umræðan þar snúist um að galopna fyrir niðurgreiddar landbúnaðarvörur frá öðrum löndum – að það sé gott því það sé svo mikið frjálslyndi. Það er mikil einföldun. Ég hef lagt áherslu á alvöru aðgerðir til að auka viðskiptafrelsi, eins og að fella niður tolla og vörugjöld og lækka skatta.“ „Mér finnst of algengt að menn leiti til gamalla slagorða eða baráttumála sem við tilteknar aðstæður voru grunnur að góðum stuðningi. Það sem ég á við er að við vinnum ekki stuðning með slagorðunum einum saman. Þetta er annað samfélag í dag og aðrir kjósendur. Maður heldur ekki þræði í samtali við kjósanda nú með því einu að rifja upp einhverja hluti sem gerðust fyrir einhverjum áratugum."

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.