Þjóðmál - 01.09.2018, Page 44
42 ÞJÓÐMÁL Haust 2018
„En við höfum lækkað skatta á bæði fólk og
fyrirtæki og við höfum náð fram á skömmum
tíma áratugagömlum baráttumálum okkar
sjálfstæðismanna á því sviðinu. Þar er ég að
vísa í vörugjöldin sérstaklega. Ég hef aldrei
litið á starfsmenn ráðuneytisins sem and
stæðinga mína bara af þeirri ástæðu að ég
sé í stjórnmálum en þeir embættismenn. Ég
lít miklu frekar á verkefni mitt, sem pólitískur
ráðherra, þannig að ég þurfi að meta hvaða
aðferðum ég geti beitt í ráðuneytinu til þess
að fá fólk í lið með mér til þess að framkalla
breytingar. Þar er skattastefnan ekki undan
skilin. Ég er ósammála þeim sem telja að það
sem dugi best í því sé að brjóta starfsmennina
niður með hörku. Mestu skiptir að hafa skýra
sýn og gera grein fyrir henni. Hvika síðan ekki
frá þeirri stefnu og fá fólk með sér í að hrinda
henni í framkvæmd.“
Bjarni segir að stundum þurfi einfaldlega að
gefa verkefnum ákveðinn tíma til að koma
þeim í framkvæmd. Afnám tolla og vöru
gjalda hafi verið slíkt verkefni.
„Ég sá fljótt að í ríkisfjármálalegu samhengi
voru þetta viðráðanlegar fjárhæðir á tekju
hliðinni. Um leið og ég hafði áttað mig á því
þetta væri gerlegt var þetta bara spurning
um hvenær rétti tíminn kæmi,“ segir Bjarni.
„Við lögðum upp með það að afnema þetta
allt og það þurfti að gera ráð fyrir því í lang
tímaáætlunum. Við sýndum því þolinmæði,
enda þarf ekki allt að gerast á fyrsta ári nýrrar
ríkisstjórnar. Þótt hlutirnir gerist á ári tvö eða
þrjú hafa þeir sömu langtímaáhrif. Það sem
skiptir máli er að hafa úthald og fylgja málum
eftir til enda. “
Of mikið kynslóðabil
Bjarni ítrekar að hér á landi hafi orðið gífur
legar framfarir á liðnum árum, hér hafi verið
lítil verðbólga, mikil kaupmáttaraukning,
það gangi betur að reka bæði heimili og
fyrirtæki og auk þess standi bæði ríkissjóður
og sveitarfélögin betur en þau gerðu. Í stuttu
máli hafi verið mikill uppgangur á Íslandi og
á sama tíma hafi fjölbreytnin í atvinnulífinu
aukist.
„Við erum að taka á mörgum langtíma
verkefnum, t.d. lífeyrissjóðsmálum og
gömlum skuldbindingum sem við erum að
vinna niður. Það sama gildir um önnur stór
mál, þar sem við erum að sníða af ýmsa van
kanta eða bæta með öðrum hætti. Við viljum
í auknum mæli vera sjálfbær á sem flestum
sviðum og styrkja þannig efnahagslegt sjálf
stæði landsins,“ segir Bjarni.
„Við erum að gera margt framúrskarandi vel
í dag, enda mælumst við reglulega fremst
meðal þjóða á ýmsa lífskjaramælikvarða.
Grundvöllur þess er meðal annars það að við
höfum tamið okkur að fara fram af varfærni
og á grundvelli langtímahugsunar. Kannski
við höfum lært það af umgengni við fiski
stofnana hve miklu það skiptir. Í það minnsta
er þetta orðið inngróið á flest svið í dag.“
Bjarni segir að þrátt fyrir þetta sé merkilega
mikil neikvæðni áberandi í umræðu um starf
stjórnvalda.
„Sumt af því finnst mér koma frá eldri
kynslóðinni, sem á köflum virðast telja að hér
sé margt að fara aftur á bak. Að allt hafi verið
svo miklu betra hér áður fyrr,“ segir Bjarni.
„Við erum að gera margt framúrskarandi vel í dag, enda mælumst við
reglulega fremst meðal þjóða á ýmsa lífskjaramælikvarða. Grundvöllur
þess er meðal annars það að við höfum tamið okkur að fara fram af
varfærni og á grundvelli langtímahugsunar.“