Þjóðmál - 01.09.2018, Side 46

Þjóðmál - 01.09.2018, Side 46
44 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Þurfum að meta gæði heilbrigðis- og menntakerfisins Í framhaldi af því sem þú segir hér, er þá ekki hægt að spyrja hvernig við ætlum að meðhöndla yngri kynslóðir sem alast upp við allt aðra velmegun en þær eldri og telja jafnvel að ýmis atriði eigi að vera bæði sjálfsögð og ókeypis, svo sem menntun? „Já, það er hluti af mannlegu eðli að vera reiðubúinn að taka við hlutum sem koma fljótandi til þín án þess að þurfa að leggja mikið á sig eða vinna fyrir þeim,“ segir Bjarni. „Þetta er samt ekkert nýtt, viðmiðin hafa bara breyst. Aðalatriði er að við sem samfélag getum gert meira í dag en við gátum áður og við eigum að nýta það betur en við gerum. Það er til að mynda stórkostleg staðreynd að við getum tryggt jafnt aðgengi að mennta­ kerfinu og beitt skólakerfinu á öllum stigum til þess að jafna aðstöðumun í samfélaginu. Við eigum að líta á menntakerfið okkar sem eitt af þeim tólum sem við höfum úr að spila til að tryggja jöfn tækifæri í lífinu, alveg óháð því hvaðan fólk kemur og hvert það stefnir. Það að við getum haldið úti slíku kerfi sem samfélag, að tryggja öllum jöfn tækifæri óháð bakgrunni og efnahag, tel ég vera hluta af kjarnastefnu Sjálfstæðisflokksins.“ Bjarni segir að hið sama eigi að gilda um heilbrigðiskerfið. Allir séu sammála um að hér sé rekið öflugt heilbrigðiskerfi þar sem fólk eigi aðgang að allri grunnheilbrigðis­ þjónustu óháð efnahag. „Það á að vera fjármagnað af sameiginlegum sjóðum og við sköpum slík verðmæti í þessu landi að við getum gert kröfu um að heil­ brigðis þjónustan sé fyrsta flokks. Fyrir alla. Það breytir því þó ekki að við verðum að gera kröfu til þess að fjármögnun þessara kerfa, hvort sem er heilbrigðis­ eða menntakerfið, sé með þeim hætti að við fáum hámarksárangur fyrir lágmarksfjármagn,“ segir Bjarni. „Við setjum ekki meira inn í kerfið en nauð­ synlegt er til að ná þeim markmiðum sem við höfum ætlað okkur. Að sama skapi tökum við ekki sjálfsaflafé af fólki í meiri mæli en nauðsynlegt er til að ná þessum markmiðum. Í þessu held ég að munurinn á áherslum flokkanna felist, því við viljum öll halda úti þessum kerfum. Ég verð líka að segja eins og er að mér finnst við hafa spólað lengi í sama umræðufarinu bæði í menntakerfinu og eins í heilbrigðiskerfinu.“ Að hvaða leyti höfum við gert það? „Í menntakerfinu gengur okkur illa að leiða fram sameiginlega sýn um fjölbreytni rekstrar forma og frelsi og tækifæri nemenda til að fara ólíkar leiðir á menntabrautinni. Auðvitað munu flokkarnir ekki hafa sam­ eigin lega sýn á þetta en við þurfum að komast eitthvað úr sporunum því árangur inn virðist standa á sér. Mér finnst við ekki hafa gert iðnnámi nógu hátt undir höfði og hefðum átt, í samvinnu við atvinnulífið, að gera meira til að breyta viðhorfi samfélagsins til slíkrar menntunar,“ segir Bjarni. „Ég þekki þetta ágætlega þar sem dóttir mín hafði reynt að fara á hnefanum í gegnum háskólanám. Einn daginn kom hún til mín og sagði að sér fyndist námið svo leiðinlegt að hún sæi ekki tilganginn í því að klára það. Hún skipti því yfir í matreiðslunám, sem var það sem hana hafði alltaf langað. Ef hún hefði hlustað á hjartað hefði hún getað hafið það nám löngu fyrr. Ég er viss um að umhverfið hefur haft áhrif á hana um fyrsta valkost.“ Bjarni segir líka að það sé full ástæða til að hafa áhyggjur af því að árangur út úr skyldu­ námi hér á landi sé ekki að koma nógu vel út í alþjóðlegum samanburði. „Það er ekki nóg að hafa áhyggjur af því rétt á meðan fréttir eru sagðar af síðustu prófum, við þurfum að skoða gagngert hvað veldur og hvernig við getum breytt því,“ segir Bjarni.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.