Þjóðmál - 01.09.2018, Side 57
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 55
Þrjár skýrslur Hannesar: Umhverfismál,
bankahrun og kommúnismi
Rannsóknir og skýrslur
Lesendum Þjóðmála þykja eflaust forvitnilegar þrjár skýrslur á ensku sem
hugveitan New Direction í Brussel gaf út árið 2017 eftir dr. Hannes Hólmstein
Gissurarson prófessor. Þær eru jafnframt allar aðgengilegar á netinu, bæði á
heimasíðu New Direction og í Google Books. Þær eru allar myndskreyttar.
New Direction er sú hugveita í Brussel sem styður hvað einarðlegast frjáls
markaðsviðskipti.
Grænn kapítalismi
Fyrsta skýrslan ber heitið Grænn kapítalismi:
Umhverfisvernd í krafti skilgreindra eigna
réttinda (Green Capitalism: How to Protect
the Environment by Defining Private Pro
perty Rights). Er hún 69 blaðsíður að lengd.
Hannes rifjar upp að á sjötta og sjöunda
áratug komu út ýmsar bækur með spádómum
um stórkostlegan vanda mannkyns sökum
umhverfisspjalla. Raddir vorsins þagna (Silent
Spring) eftir Rachel Carson var um hættuna af
skordýraeitrinu DDT, sem úðað var á ræktað
land. Carson hafði rétt fyrir sér um að efnið
gat gert suma fugla ófrjóa tímabundið en
hitt reyndist rangt að DDT væri hættulegt
mönnum. Engu að síður var horfið frá því
að nota það gegn skordýrum, með þeim
afleiðingum að milljónir manna hafa dáið úr
mýraköldu (malaríu), en DDT drepur fluguna
sem ber sjúkdóminn í menn.
Í Óbyggð og allsnægtum (Wilderness and
Plenty) hélt Sir Frank Fraser Darling því fram
að mannkyni stafaði ógn af stjórnlausri
offjölgun. Reyndin hefur hins vegar orðið sú
að hægt hefur á fólksfjölgun eftir því sem
fátækar þjóðir hafa komist í meiri álnir.
Hannes H. Gissurarson kynnti skýrslu sína um Grænan
kapítalisma á umhverfisráðstefnu ACRE í Bibliotheque
Solvay í Brussel 24. maí 2018.
Í Heimi á helvegi (A Blueprint for Survival)
kváðu Edward Goldsmith og félagar hans
þéttingu byggðar leiða til aukinna glæpa,
en hið gagnstæða hefur gerst: glæpum hefur
víðast fækkað. Í Endimörkum vaxtarins (Limits
to Growth) fullyrtu höfundar að framleiðsla
lífsgæða gæti ekki haldið í við fjölgun mann
kyns og aukningu þarfa, svo að mörg hráefni
yrðu á þrotum um og eftir 2000. Þetta hefur
ekki gerst, ekki síst vegna ófyrirséðra tækni
framfara. Væri nær, segir Hannes, að tala um
að raddir vorsins fagni.