Þjóðmál - 01.09.2018, Qupperneq 62

Þjóðmál - 01.09.2018, Qupperneq 62
60 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Þegar Kuortti neitaði að njósna um sóknar­ börn sín fyrir kommúnista var hann sendur í þrælkunarbúðir í Karelíu. Þaðan tókst honum að flýja yfir til Finnlands 1930 og segja sögu sína. Kíra Argúnova eftir Ayn Rand er skáld­ saga um unga og hugrakka stúlku í Péturs­ borg sem þolir ekki áþján kommúnismans og reynir að flýja yfir landamærin til Lettlands, sem þá var sjálfstætt ríki. Myrkur um miðjan dag eftir Arthur Koestler er skáldsaga um hin alræmdu Moskvu réttar­ höld sem Stalín hélt á fjórða áratug 20. aldar yfir gömlum félögum sínum í kommúnista­ flokknum. Koestler reynir að skýra hvers vegna þeir játuðu á sig hinar fáránlegustu sakir, að því er virðist fúsir. Hann telur að þeir hafi sem byltingarmenn afsalað sér öllu siðferðilegu sjálfræði. Flokkurinn var þeim sannleikurinn og þegar hann ákvað að þeir væru sekir urðu þeir að viðurkenna að þeir væru sekir. Úr álögum eftir Jan Valtin, sem hét réttu nafni Richard Krebs, er um starf hans fyrir Alþjóðasamband kommúnista, Komintern, en höfundurinn ljóstraði því meðal annars upp, sem hefur verið staðfest annars staðar, að kommúnistar notuðu skip Eimskipafélags Íslands til að flytja leyniskjöl milli landa. Skáldsagan Nítján hundruð áttatíu og fjögur eftir George Orwell, réttu nafni Eric Blair, er um alræðisríkið þar sem allir verða að elska Stóra bróður og fara eftir því sem Flokkur­ inn ákveður hverju sinni. Ég kaus frelsið er sjálfsævisaga flóttamanns frá Úkraínu, Víktors Kravtsjenkos. Þar lýsir hann eymdinni og kúguninni undir hinni rússnesku ráðstjórn, lögregluríkinu, þrælkunarbúðunum og hungurs neyðinni í Úkraínu 1932–1933. Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum er eftir Ants Oras, prófessor í enskum bókmenntum við Tartu­háskóla, sem varð vitni að hernámi Rauða hersins 1940 og þýska hersins 1941, en tókst að flýja 1943. Segir hann sögu smáþjóðar sem átti við ofurefli að etja. Guðinn sem brást hefur að geyma frásagnir sex menntamanna og er að vonum afburða­ vel skrifuð. Þrír gengu á hönd kommún­ ismanum; rithöfundarnir Arthur Koestler frá Ungverjalandi, Ignazio Silone frá Ítalíu og Richard Wright frá Bandaríkjunum. Þrír voru samferðamenn (eða meðreiðarsveinar) kommúnista; franski rithöfundurinn André Gide (Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum), bandaríski blaðamaðurinn Louis Fischer og enska skáldið Stephen Spender. Molotov og Hitler hittast í Berlín haustið 1940 til að fylgja eftir ýmsum ákvæðum griðasáttmálans sem Stalín og Hitler gerðu í Moskvu í ágúst 1939. Kommúnistar og nasistar voru bandamenn fyrstu tvö ár stríðsins. Ljósm. Library of Congress.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.