Þjóðmál - 01.09.2018, Side 87
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 85
framtak er varið og ýmsar neikvæðar sögu
s agnir um frjálsa samvinnu og frjálst framtak
aflífaðar. Textinn er lipur og boðskapurinn
hrífandi. Samlíkingin við mafíuna hittir líka
beint í mark, eins og lesendur sjá fljótlega.
Bókina má sækja endurgjaldslaust á heima
síðu hinnar bandarísku Misesstofnunar.1
En ef ríkisvaldið er í eðli sínu bara lögleg mafía,
af hverju beygjum við okkur fyrir því? Í næstu
bók reynir höfundur að varpa ljósi á það.
The Politics of Obedience: The
Discourse of Voluntary Servitude
- eftir Étienne de La Boétie
Árið er 1549. Ungur franskur háskólanemi að
nafni Étienne de La Boétie, fullur eldmóðs,
sest niður og reynir að átta sig á því af hverju
fólk tekur við fyrirmælum frá ríkisvaldinu,
sem á hans tíma var frekar þrúgandi einveldi.
Hvað veldur hinni skilyrðislausu hlýðni, að því
er virðist, við yfirvöld sem eru greinilega miklu
uppteknari af hagsmunum örfárra höfðingja
en almúganum sem fæðir þá og klæðir?
Höfundur kemst meðal annars að þeirri
niðurstöðu að sú ánauð sem við höfum vanist
undir stjórn ríkisvaldsins hafi blindað okkur
fyrir sannleikanum, rænt okkur metnaðinum
og deyft þá meðfæddu ósk okkar að vera
frjáls. Kannski það sé rétt niðurstaða, því
þegar höfundur bókarinnar kláraði námið
sitt gekk hann til liðs við hið opinbera sem
embættismaður og hvarf inn í báknið.
Litla bókin hans um sjálfviljuga ánauð hefur
hins vegar lifað til dagsins í dag og mun gera
það áfram. Bókina má sækja endurgjaldslaust á
heimasíðu hinnar bandarísku Misesstofnunar.2
En getur verið að það sé fleira en fáviska, heila
þvottur og metnaðarleysi sem gerir marga svo
heillaða af ríkisvaldinu?
Já, auðvitað. Fyrir mörgum er hið óþekkta
verra en hið vel þekkta jafnvel þótt hið
vel þekkta sé þrælahald, ánauð, kúgun og
miðstýring. Í næstu bókum reyna höfundar að
draga aðeins úr áhyggjum þeirra sem óttast
þær breytingar sem felast í minna ríkisvaldi.
For a New Liberty: The Libertarian
Manifesto - eftir Murray N. Rothbard3
Hagfræðingurinn, sagnfræðingurinn, heim
spekingurinn, stjórnmálafræðingurinn og
háskólaprófessorinn Murray N. Rothbard er
af mörgum talinn vera faðir frjálshyggjunnar
eins og hún gerist tærust. Eftir hann liggur
lítið bókasafn af fræðigreinum, fyrirlestrum,
blaðagreinum og bókum. Hann skrifaði
bækur fyrir bæði fræðimenn og leikmenn og
meðal þeirra í síðarnefndum hópnum er hið
klassíska rit For a New Liberty.
Bókin var gefin út um það leyti sem frjáls
hyggjan var á ný byrjuð að njóta hylli eftir
dágóðan dvala á meðan hagfræðingar af
skóla Keynes lögðu frjálsan markað að tölu
verðu leyti í rúst og sendu hverja kreppuna
eftir annarri yfir grunlausan almúgann.