Þjóðmál - 01.09.2018, Page 88

Þjóðmál - 01.09.2018, Page 88
86 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Peningaprentun og „vísindaleg stjórnun“ ríkis ins á hagkerfinu átti að leysa öll vanda­ mál en raunin reyndist önnur. Það var því orðið tímabært að vekja athygli á frjálsum markaði á ný. Murray sparar ekki stóru spurningarnar. Hvað gerist ef ríkið víkur í auknum mæli fyrir hinu frjálsa framtaki? Hver ætlar að framfylgja rétt vísinni ef dómstólar ríkisvaldsins minnka umsvif sín? Hver ætlar að leggja vegina? Hvað á að gera við mengun? Hver ætlar að byggja vitana og hjálpa þeim fátæku og sjúku? Þessar spurningar og fleiri leita hratt á þá sem velta fyrir sér frjálsara samfélagi. Flest eigum við erfitt með að sjá fyrir okkur hvað gerist ef hinn kæfandi faðmur ríkisvaldsins losar um tak sitt. Það er samt óþarfi að óttast. Í flestum tilvikum er hægt að benda á fordæmi þar sem ríkisvaldið einfaldlega ýtti einkaaðilum til hliðar og hirti heiðurinn en kenndi öðrum um vandræðin. Einfalt dæmi er vitar sem beina skipum að höfn. Þeir eru yfirleitt reknir af opinberum einingum í dag en svo hefur ekki alltaf verið og vitar eru raunar uppfinning hins frjálsa markaðar. Annað dæmi er peningar, en ríkið hirti útgáfu þeirra af einkaaðilum til að auka tekjur sínar með peningaprentun (eða rýrnun á innihaldi góðmálma í myntum). Ónefnd eru svo réttlætisrökin. Við eigum ekki að styðja við frjálst samfélag af því að við verðum rík af því heldur af því það er réttlátt. Þeir sem börðust fyrir afnámi þrælahalds gerðu það ekki til að auðgast á því heldur af því að frelsi var þeim réttlætismál. Og þótt mótbárur heyrist og baráttan taki tíma á ekki að gefast upp. Réttlæti er eina ásættanlega niðurstaðan. Ríkisvaldið hefur raunar aldrei fundið upp neina stofnun sem gagn er að. Góðverk voru framkvæmd áður en velferðarkerfið var stofnað. Börn lærðu að lesa áður en ríkið lagði undir sig menntakerfið til að heilaþvo ungviðið. Dómstólar hafa verið til í öllum samfélögum án ríkisvalds, eins og íslenska þjóðveldið er dæmi um. Allt sem ríkið gerir í dag og má teljast vera gagnlegt hefur það einfaldlega hrifsað af einkaaðilum. Um leið hefur sú þjónusta hækkað í verði og rýrnað í gæðum. Aðhalds laus einokun er ávísun á slíka þróun. En á frjálshyggjan við í dag? Rann hún ekki út þegar þrælahald hafði verið afnumið, einveldiskonungum hafði verið steypt af stóli og stjórnarskrám verið komið á til að temja hið opinbera og verja réttindi og eignir ein­ staklinga? Það er öðru nær. Enn þrífast stórir afkimar ríkisvalds hvert sem litið er og á þá þarf að herja. Um það fjallar næsta bók. Libertarianism Today - eftir Jacob H. Huebert Áttu að fá að eiga byssu til að verja þig gegn vopnuðum ræningjum og ofbeldismönnum? Getur þú fengið góða hugmynd, t.d. að nýju lyfi, og bæði grætt á henni og bannað öðrum að notast við hana? Áttu að fá að neyta eiturlyfja? Má skylda þig til að borga fyrir hernaðaraðgerðir í fjarlægum heimshornum? Eða svipta þig frelsi og senda þig í hernaðar­ leiðangra? Eiga læknar ríkisvaldsins einir að fá að meðhöndla þig? Allt eru þetta áleitnar spurningar en frjáls­ hyggju menn einir hafa svör sem falla bæði að tilfinningu okkar fyrir réttlæti og hagkvæmnis rökum hagfræðinnar.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.