Þjóðmál - 01.09.2018, Side 92

Þjóðmál - 01.09.2018, Side 92
90 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Bókin sem ég segi fyrst frá heitir Radical markets: Uprooting capitalism and democracy for a just society (Róttækir markaðir: Að uppræta auðvald og lýðræði í þágu réttláts samfélags) og er eftir Eric Posner, prófessor í lögfræði við Chicago­háskóla, og E. Glen Weyl, hag­ fræðing við rannsóknarstofnun Microsoft. Sú seinni heitir Why liberalism failed (Hvers vegna frjálslyndið brást) og er eftir Patrick J. Deneen, sem er prófessor í stjórnmálafræði við Notre Dame­háskólann í Indiana. Höfundar bókanna eiga um margt samleið í greiningu sinni á kröggum frjálslyndra stjórn­ mála. Þeir segja að stór hluti almennings sé að missa trú á stjórnarháttum frjálslyndra afla. Í báðum bókunum er þetta ástand nefnt „crisis of legitimacy“. Sá frasi er ensk þýðing á hugtaki sem þýski heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Jürgen Habermas kynnti árið 1973 og kallaði „Legitimationsproblem“. Orðalagið vísar til vanda sem felst í út breiddu vantrausti á stofnunum samfélagsins og efasemdum um réttmæti ríkisvaldsins. Vandi samtímans Í báðum bókunum er rætt um vaxandi þjóðernis­ og einangrunarstefnu og fylgi við „sterka“ leiðtoga, sem vandamál. Posner og Weyl (bls. 3) tala um sókn „popúlisma“ og kjósendur sem eru óánægðir með vaxandi ójöfnuð og minnkandi hagvöxt. Þeir segja það tímanna tákn að 90% af bandarískum börnum sem fæddust 1940 hafi búið við betri kjör en foreldrar þeirra en þetta gildi aðeins um helming barna sem fæddust 1980. Með aukinni markaðsvæðingu og alþjóða­ væðingu frá því um 1980 hafi átt að vinna gegn stöðnun og verðbólgu áratuganna á undan. Menn áttu taka því þótt böggull fylgdi skammrifi og ójöfnuður ykist eitthvað. Úr varð enn meiri stöðnun og minni hag­ vöxtur svo ekkert hlaust af þessu nema meiri ójöfnuður, segja þeir (bls. 11). Deneen ræðir um rótleysi sem margir bregðast við með því að flykkja sér um leiðtoga sem þeir vona að nái að snúa niður ríkis­ og markaðsvæðinguna (bls. 177). Hann segir að hætta sé á að reiðin og óttinn komi einræðisherrum til valda. Hann segir líka að frjálslynd stjórnmál hafi brugðist vonum fólks um réttlæti og betri kjör, menn sjái þess í stað vaxandi ójöfnuð og finni til öryggisleysis vegna breytinga sem þeir hafi enga stjórn á, því þær birtist eins og óhjákvæmilegar afleiðingar af hagfræðilegum lögmálum (bls. 9). Þótt samhljómur sé í lýsingum á því hvernig komið er eru úrræðin sem bent er á í þessum tveimur bókum svo andstæð sem vera má. Posner og Weyl vilja ganga götu markaðs­ væðingar og frjálslyndrar einstaklingshyggju til enda og segja að vandinn liggi í því að mikilvæg skref hafi ekki verið stigin nema rétt til hálfs. Deneen telur hins vegar að sú leið sé blindgata og best sé að snúa við. Posner, Weyl og róttæk markaðshyggja Posner og Weyl byrja formála bókar sinnar á að minna á að frjálshyggjumenn 19. aldar voru róttæklingar. Þeir beittu sér fyrir djúp­ tækum samfélagsbreytingum sem þeir töldu alþýðu til hagsbóta. Þeir reyna að endurvekja þennan anda róttækrar frjálshyggju til að auka jöfnuð og hagsæld og losa stjórnmálin úr þeirri úlfakreppu sem við blasir. Vandræðagangi hinnar breiðu miðju lýsir bókin í stuttu máli á þá leið að þau sem eru á vinstri kantinum segi að ríkið eigi að auka skatta á auðmenn til að tryggja húsnæði, heilbrigðisþjónustu og vinnu fyrir alþýðuna. Þau sem eru á hægri jaðri miðjunnar svara að þá endum við með ástand eins og í Venesúela og Simbabve, nær sé að einkavæða það sem ríkið rekur, lækka skatta og draga úr regluverki, því þá batni kjör allra. Svo eru tæknikratarnir í miðju sem segja að það þurfi að fínstilla regluverkið og gera umbætur í þágu mannréttinda (bls. xiv). Posner og Weyl segja að þessi svör hafi gagnast á sínum tíma en nútíminn krefjist annars konar hugsunar. Þessa annars konar hugsun sækja þeir að nokkru leyti til 19. aldar, því hugmyndir þeirra byggjast um sumt á kenningum bandaríska hagfræðingsins Henry George (1839–1897).

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.