Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 93

Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 93
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 91 Hann taldi hægt að auka jöfnuð, en njóta samt kosta markaðsbúskapar, með því að jarðnæði væri allt í almannaeigu, og til leigu, en vörur gengju kaupum og sölu á markaði. Ráðin gegn stöðnun og ójöfnuði sem Posner og Weyl benda á snúast um að vinna gegn markaðsbrestum. Þeir segja að þessir brestir stafi af því að eignir eins og jarðnæði, náttúruauðlindir og fyrirtæki séu ekki nógu fljótandi og lendi því ekki nógu greiðlega í höndum þeirra sem nýti þær best. Þeir leggja til skipan sem líkja má við stöðug uppboð á hluta þess sem menn geta nú haldið fast í sem séreign. Róttækni þeirra er þó hófleg að því leyti að þeir vilja að byrjað sé á að prófa þetta í smáum stíl. Um sumt minna þessar tillögur á eina gerð andófs gegn kvótakerfinu í sjávarútvegi, sem nokkuð hefur borið á hér á landi, nefnilega hugmyndir um tíð uppboð á fiskveiðiheimildum. Skorður við eignarrétti og ráð við fákeppni Posner og Weyl taka undir það með hægri­ mönnum að styrkja þurfi markaðsbúskap og koma honum víðar við. En þeir finna að því að hægrisinnaðir flokkar beiti sér einatt gegn breytingum sem þurfi að gera til að draga úr fákeppni, einokun og markaðsbrestum. Til að bæta úr þessu leggja þeir til að vissar eignir verðleggi eigendur sjálfir og greiði skatt í hlutfalli við hvaða verðmiða þeir setja á þær. Eignir sem svo eru verðlagðar skulu ekki vera fastar í hendi heldur skal mönnum skylt að selja þær við því verði sem þeir telja fram. Eignamenn geta þá ekki vikið sér undan skattheimtu nema lækka verð eigna sinna svo að hætta sé á að aðrir kaupi þær á undirverði. Með þessu telja þeir hægt að sameina annars vegar dreifstýringu og kosti markaða og hins vegar félagslega eign á auðlindum og landi, þar sem hver sem er má kaupa eignir sem handhafi verðleggur lágt og enginn getur verðlagt eignir hátt nema borga meira í sameiginlega sjóði. Slíka skipan segja þeir verða til þess að eignir sem skila litlum arði lendi hjá nýjum eigendum og hagvöxtur aukist fyrir vikið. Ef þetta kerfi yrði tekið upp í íslenskum sjávarútvegi mættu handhafar kvóta setja á hann hvaða verð sem er og borga skatt í hlutfalli við það. Þeir sem verðleggja kvóta sinn lágt, og segjast þar með ekki hafa efni á að borga nema lítinn skatt, verða þá að una því að hver sem telur sig geta staðið undir hærri sköttum geti keypt kvótann af þeim á því lága verði sem þeir tíunda. Nýr kaupandi getur svo verðlagt eign sína hátt til að halda henni en verður fyrir vikið að borga hærri skatt. Þetta virkar nánast eins og auðlindir séu til leigu og leiguverð sé ákveðið og sífellt endurskoðað með uppboðum. Posner og Weyl taka vitaskuld önnur dæmi en fiskveiðikvóta en þeir útfæra hugmyndir sínar í nægilegum smáatriðum til að auðvelt sé að heimfæra þær á ólík svið. Eitt lykilatriði er að þeir segja að handhafar eigna eigi að mega verðleggja þær í kippum. Þannig mætti útgerð setja eitt verð á bæði skip og kvóta til að koma í veg fyrir að nokkur gæti leyst til sín annað af þessu með þeim afleiðingum að eigandi sæti uppi með hitt og gæti ekki nýtt það. Þeir orða þetta svo að við þá skipan sem þeir leggja til þurfi engir að una því að keyptur sé af þeim annar skórinn og þeir sitji uppi með hinn (bls. 64). Í stuttu máli má segja að róttæknin í bókinni felist í því að auka markaðsvæðingu og dreifstýringu en takmarka um leið eignarrétt. Það verður ekkert mið­ stjórnarvald sem verðleggur eignir manna. Þeir gera það hver fyrir sig. Á móti kemur að enginn getur neitað að selja eign sína. Annað ráð sem þeir leggja til byggist líka á því að setja eignarrétti skorður. Þetta ráð er að takmarka möguleika fjárfesta og sjóða til að eiga hlut í tveimur eða fleiri fyrirtækjum í sömu grein atvinnulífs. Posner og Weyl segja að af því leiði í raun fákeppni þar sem nokkrir stórir fjárfestar eiga til að mynda í mörgum verslana­ keðjum eða mörgum flugfélögum. Eigendurnir hafa þá meiri hag af að halda launum niðri en að etja fyrirtækjunum saman í samkeppni. Úr verður hagkerfi þar sem topparnir eru öruggir með sitt og þurfa lítt að óttast samkeppni en kjör verkafólks versna (bls. 201).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.