Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 94

Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 94
92 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Sjóðval og sala á landvistarleyfum Posner og Weyl vilja ganga býsna langt í að gera alla að kaupendum og seljendum og hafa sífellt uppboð á alls konar gæðum. Þeir leggja meðal annars til að atkvæðin, sem gefa almennum borgurum pólitísk völd, verði í meiri mæli eins og peningar þar sem hver kjósandi hefur sjóð atkvæða til ráð stöfunar. Við slíka skipan getur kjósandi notað mörg atkvæði til að styðja mál sem hann ber mjög fyrir brjósti. Sá sem það gerir verður þá snauður af atkvæðum til að verja í önnur mál, en þannig er það líka með peninga, sá sem eyðir miklu í eitt á minna aflögu í annað. Með þessu fyrirkomulagi getur sæmilega stór minnihlutahópur varið það sem honum er kærast þó að meirihlutinn sé allt eins til í að fórna því fyrir önnur gæði. Útfærsla Posners og Weyl á þessari hugmynd er allítarleg og studd stærðfræðilegum rökum sem erfitt er að rekja í stuttu máli. Dálítið svipuð hugmynd hefur verið kynnt hér á landi af Birni S. Stefáns­ syni (2003) sem kallar hana sjóðval, þar sem hver kjósandi á sjóð atkvæða. Enn eitt efni sem fjallað er um í bókinni er fólksflutningar milli landa. Posner og Weyl segja að það sé almennt til hagsbóta að fólk flytji þaðan sem laun eru lág til staða þar sem laun eru hærri. Þeir benda á að Singa­ pore vegni vel með tvo innflytjendur á móti hverjum þremur innfæddum og svipað megi segja um Ástralíu og Nýja­Sjáland, þar sem hlutfall innflytjenda er líka mjög hátt. Þeir nefna einnig staði á Vesturlöndum, eins og Toronto í Kanada, þar sem helftin af fólki er innflytjendur en samt almenn velmegun. Posner og Weyl álíta að auðug samfélög geti tvöfaldað íbúafjölda sinn með því að opna fyrir aukinn innflutning frá fátækari löndum. Vandinn við þetta er, segja þeir, einkum sá að stór hluti alþýðu í ríku löndunum telur sér ógnað af innflytjendum, enda er erfitt fyrir verkafólk að keppa við nýbúa sem eru vanir mjög kröppum kjörum og sætta sig við þau (bls. 146). Tillaga þeirra um lausn á þessum vanda er mjög í anda markaðshyggju. Þeir telja að það ætti einfaldlega að leyfa fólki að bjóða útlendingi til sín, ganga í ábyrgð fyrir hann og taka gjald fyrir. Verkamaður getur þá sagt við stéttarbróður í öðru landi: Þú hækkar laun þín um milljón með því að flytja hingað, ég fæ vegarbréfsáritun fyrir þig og við skiptum kjarabótinni á milli okkar. Þessi tillaga gefur ágæta hugmynd um tóninn í bókinni. Höfundar hennar eru til að í bjóða flestum hugmyndum okkar byrginn og ansi margt sem þeir segja ögrar fólki sem er alið upp við frjálslyndi af því tagi sem þeir segja að sé gengið sér til húðar, hvort sem það heitir hægristefna, vinstristefna eða eitthvað þar á milli. Úrræði þeirra eru þó öll rökstudd og skýrð sem rökrétt framhald af frjálslyndi af því tagi sem tíðkast innan hinnar breiðu miðju. Þau eru skref í átt að meiri einstaklingshyggju, meiri markaðs­ búskap og auknum hreyfanleika fólks og fjármuna. Mörg af úrræðum þeirra, eins og sjóðval, sífelld uppboð á eignum og ábyrgð einstaklinga á innflytjendum gera ráð fyrir miklu rafrænu utanumhaldi, skráningu og eftirliti. Sumar hugmyndir þeirra eru raunar óframkvæmanlegar án nýjustu upplýsinga­ og samskiptatækni. Deneen og frjálslyndi nútímans Snúum okkur nú að hinni bókinni. Höfundur hennar, Deneen, segir að frjálslyndið (e. liberalism) sé fyrsta pólitíska hugmynda­ fræði nútímaríkja; kommúnisminn og fasisminn hafi komið fram sem andóf gegn því. En saga síðustu aldar dæmdi kommún­ isma og fasisma úr leik og í aldarlok virtist frjálslyndið eina hugmyndafræðin sem hægt var að taka alvarlega (bls. 4). Deneen segir að frjálslyndið sé draumur sem hafi frá öndverðu búið yfir tilhneigingu til að breytast í martröð. Hann segir líka að þeir sem reyni að bæta út göllum frjálslyndra samfélaga með enn meira frjálslyndi helli í raun olíu á eld (bls. 4). Það sé sama hvort litið sé til stjórnmála, hagkerfis eða menntakerfis; úrræði í anda frjálslyndis, sem ætlað sé að gefa fólki aukið svigrúm, virki sem fjötrar og valdi vaxandi gremju (bls. 6).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.