Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 97

Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 97
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 95 Arfur Thomasar Hobbes Eins og áður segir rekur Deneen upphaf frjáls lyndrar einstaklingshyggju til Thomasar Hobbes. Bók hans Leviathan sem út kom 1651 hafði ómæld áhrif á stjórnspeki og hugmyndir manna um þjóðríkin sem voru að mótast í Evrópu eftir að valdakerfi miðalda leið undir lok. Hobbes hugsaði sér að án ríkisvalds væri ekkert samfélag og ekkert taumhald á mönnum. Án valdstjórnar lentu frjálsir einstaklingar, sem hugsuðu bara um eigin hag, í sífelldum árekstrum og útistöðum. Hann lýsti ríkinu svo að það væri eins og slíkir einstaklingar hefðu samið sín á milli um að fá einum aðila einka rétt til að setja lög og framfylgja þeim. Um þetta fjallar hann í 13. kafla Leviathan þar sem segir: Sé ekkert vald sem allir óttast þá ríkir ófriður og sá ófriður er stríð allra manna gegn öllum mönnum … Meðan þetta ástand varir hefur iðjusemi engan tilgang því afrakstur hennar er ótryggur og því er engin jarðrækt og engar siglingar og menn nota ekki vörur sem fluttar eru sjóleiðis; ekki eru heldur neinar vel búnar byggingar og ekki neinar vélar til að flytja og fjarlægja hluti sem mikla krafta þarf við, engin þekking á yfirborði jarðarinnar, ekkert tímatal, engar listir, ekkert er skrifað og það er ekki neitt samfélag. Það versta er þó að menn búa við stöðugan ótta og sífellda ógn um grimmi­ legan dauðdaga og þeir lifa skamma ævi við einsemd og fátækt og nöturlegan skepnu­ skap (Hobbes, 1962, bls. 143). Frjálslynd stjórnmál hafa gert ráð fyrir að ríkisvald, og einstaklingsréttindi sem það skil­ greinir og ver, komi í veg fyrir þetta ástand. Menn vita þó að fyrir daga ríkisvalds lifði stór hluti fólks í friði og sátt svo að sagan um samkomulag til að binda enda á þá skelfingu sem Hobbes lýsti, og kallaði stríð allra gegn öllum, er ekki bókstaflegur sannleikur. Ef Deneen hefur lög að mæla er hins vegar áleitin spurning hvort hagskipan og samfélags­ hættir sem frjálslynd öfl beita sér fyrir skapi ástand þar sem engin lögregla er nógu fjölmenn til að fólki finnist það öruggt. Lokaorð Það er fróðlegt að lesa þessar tvær bækur saman vegna þess að þær benda á sömu ógöngur en vísa hvor í sína áttina á leið út úr þeim. Posner og Weyl huga einkum að ráðum gegn stöðnun, minnkandi hagvexti og vaxandi stéttaskiptingu. Úrræði þeirra auka hreyfanleika fólks og eigna og hætt er við að þau geri félagslegan veruleika enn hverfulli en hann er nú þegar. Deneen hefur minni áhyggjur af eiginlegum efnahagsmálum, en hugsar meira um rótleysi og öryggisleysi og niðurbrot lífshátta sem fólk þarf að styðjast við svo það læri að stjórna sér sjálft. Ráð hans eru því að hlúa að stöðugleika, einkum í smærri félagsheildum en ríkinu. Ég held að enginn viti hvort hægt er að gera þetta án þess að festast í þeim hjólförum stöðnunar og stéttaskiptingar sem Posner og Weyl vara við. Svör við spurningum um þau efni eru ekki fundin. En meðan menn skrifa bækur eins og þessar tvær er að minnsta kosti leitað að lausnum á vandamálum samtímans. Höfundur er heimspekingur og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rit Atli Harðarson. (2006). Frjálshyggjan og stjórnmál nú tímans. Stefnir – tímarit um þjóðmál, 56(1), 31–35. Atli Harðarson. (2007). Um hjónabönd samkynhneigðra. Skírnir, 181(1), 203–215. Atli Harðarson. (2015). Alþjóðleg mannréttindi. Skírnir, 189(2), 444–473. Björn S. Stefánsson. (2003). Lýðræði með raðvali og sjóðvali. Reykjavík: Háskólaútgáfan. Hobbes, Thomas. (1962). Leviathan. Glasgow: Collins–Fontana. Polanyi, Karl. (2001). The great transformation: The political and economic origins of our time (2. útgáfa). Boston, MA: Beacon Press. Scott, James C. (1998). Seeing like a state: How certain schemes to improve the human condition have failed. New Haven, CT: Yale University Press. Scott, James C. (2012). Two cheers for anarchism: Six easy pieces on autonomy, dignity, and meaningful work and play. Princeton, NJ: Princeton University Press. Scott, James C. (2017). Against the grain: A deep history of the earliest states. New Haven, CT: Yale University Press.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.