Þjóðmál - 01.09.2018, Side 98
96 ÞJÓÐMÁL Haust 2018
Að lokum
Öflugt starf hjá frjáls lyndum stúdentum
Rösklega 140 manns sóttu svæðisþing Evrópu
samtaka frjálslyndra stúdenta, European
Students for Liberty (ESFL), og Samtaka frjáls
lynda framhaldsskólanema 22. september
2018 á Grand Hótel.
Magnús Örn Gunnarsson, Marta Stefánsdóttir
og Sigurvin Jarl Ármannsson höfðu umsjón
með skipulagningu þingsins, sem hátt í þrjátíu
erlendir stúdentar sóttu. Þetta er í fimmta sinn
sem ráðstefnan er haldin hér á landi. Vert er að
geta þess að þessi ráðstefna er stærsti frjáls lyndi
stúdentaviðburður í ár á Norðurlöndunum. Á
ráðstefnunni var meðal annars fjallað um frjáls
viðskipti, rannsóknir, hagfræði, skatta stefnur
og fleira. Guð laugur Þór Þórðarson utanríkis
ráðherra flutti lokaávarp.
Samtök frjálslyndra stúdenta eru hluti af
alþjóðasamtökunum Students for Liberty,
sem starfrækt eru út um allan heim. Starf
samtakanna skiptist niður á heimsálfur og
eru samtökin hér á landi því hluti af European
Students for Liberty (ESFL). Þá hafa samtökin
hér á landi einnig notið stuðnings RNH,
Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt.
Fyrr í sumar var Frjálsi sumarskólinn haldinn
hér á landi í samstarfi við ESFL og Samtök
frjálslynda framhaldsskólanema. Þar héldu
erindi þingmennirnir Óli Björn Kárason og
Brynjar Níelsson en auk þeirra þau Davíð
Þorláksson lögfræðingur, Sigríður Andersen
dómsmálaráðherra og Ragnhildur Alda María
Vilhjálmsdóttir sálfræðingur. Jeffrey Miron,
prófessor í Harvardháskóla, flutti loks erindi
um undirstöðuatriði frjálshyggju.
Í byrjun árs stóðu samtökin fyrir vel sóttu
leiðtoga námskeiði. Þar flutti Hannes H.
Gissurar son prófessor erindi um frjáls hyggju
en auk hann héldu jafnframt erindi þeir Gísli
Freyr Valdórsson, ritstjóri Þjóðmála, og
Gunnlaugur Jónsson fjárfestir.
Fyrir utan fyrrnefnda viðburði hafa samtökin
staðið að öðrum minni viðburðum, starfrækt
öflugt tengslanet í skólum landsins auk þess
sem fulltrúar þeirra hér á landi hafa sótt fjöl
margar ráðstefnur og fundi erlendis.
Frá svæðisþingi ESFL og
Samtaka frjálslyndra
stúdenta sem haldið var á
Grand Hótel 22. september.
Um 140 manns sóttu þingið.