Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 10
8 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019
Jón Hallur Stefánsson svaraði Hallgrími
Helgasyni:
„Það er einmitt sæluhrollurinn sem ég er
að vara við Hallgrímur, kikkið sem maður
fær við að rífa kjaft og móðga einhvern,
eða heyra einhvern annan gera það fyrir
sig. Ég er ekki að biðja um kurteisi en ef þú
ert að gagnrýna stjórnmálaflokk og stenst
ekki mátið að slengja einhverjum krassandi
merkimiða á hann (barnaníðingaflokkur,
krabbamein) til að gleðja skoðanabræður
þína ertu um leið að grafa undan því að
gagnrýni þín hafi nein önnur áhrif en
að vekja þennan eftirsótta sæluhroll.
Þú getur að minnsta kosti ekki búist við
málefnalegum svörum, er það?“
Hallgrímur svaraði Jóni Halli á þann veg
að hann væri löngu hættur að búast við
málefnalegum svörum, hann væri „búinn að
standa í þessu of lengi til þess. Það eina sem
bítur eru svona nicknames Bláa höndin og
krabbamein“.
Jón Hallur svarar að sér þyki „sorglegt“ að
Hallgímur beiti sjálfur „þessari aðferð“ þótt
Bláa höndin hafi verið „fínt hugtak“, það hafi
verið „greining í því“.
Hallgrímur Helgason ritaði grein í Morgunblaðið
13. september 2002 undir fyrirsögninni
Baugur og Bláa höndin. Hann gagnrýndi þar
Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra,
fyrir að veitast ítrekað að „spútnikfyrirtækinu
Baugi“. Guðfaðir nýja hagkerfisins hefði snúist
gegn „bestu börnum þess“. Hallgrímur sagðist
hafa vonað að íslenska efnahagskerfið væri
loksins að fullorðnast og hann tæki sárt „að
sjá lögregluvaldi misbeitt gegn framsæknum
viðskiptamanni [Jóni Ásgeiri Jóhannessyni] á
ögurstundu“. Einn stærsti árangur Íslendinga
í alþjóðaviðskiptum hefði verið eyðilagður
af litlum mönnum með stór völd. „Bestu
viðskiptasonum Íslands“, Baugsmönnum,
hefði ekki tekist að eignast Arcadia í Bretlandi
með Philip Green.
Þarna vísar Hallgrímur til þess málatilbúnaðar
Jóns Ágeirs að Philip Green hefði fallið frá
viðskiptum við sig vegna lögreglu
rannsóknarinnar gegn sér. Hallgrímur
Helgason tók upp hanskann fyrir peninga
og viðskiptamenn fyrir hrun. Hann hvatti til
þess að Samfylkingin beitti sér í þágu hluta
þeirra til að fella Sjálfstæðisflokkinn og Davíð
Oddsson. Aðför hans misheppnaðist og nú
vonar hann að árangur náist með því að líkja
Sjálfstæðisflokknum við krabbamein!
Sir Philip Green hefur átt skrautlegan feril.
Tillaga um að svipta hann sirnafnbótinni
var samþykkt í neðri deild breska þingsins
árið 2016 án þess að eftir henni væri farið.
Hann stendur í stórræðum í Bandaríkjunum
til að verjast ásökunum um kynferðislega
áreitni. Fjármálaveldi hans er ekki svipur hjá
sjón og er nú talað um hann sem fyrrverandi
milljarða mæring.
Útifundir og krafa um stjórnarskrárbreytingu vegna uppljóstrana um mútur
við öflun veiðiheimilda undan strönd Namibíu mynda ekki neina samstöðu í
stjórnarskrármálinu hér á landi. Þvert á móti eru þessir fundir og málflutningurinn
á þeim til þess eins fallinn að auka sundrung meðal þjóðarinnar.