Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 63
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 61
Kennedy brá nokkuð þegar Salinger afhenti
honum vindlana og skipaði honum að
afhenda þá tollayfirvöldum. Salinger spurði
Kennedy hvað hann hygðist láta gera við
vindlana. „Eyða þeim,“ svaraði Kennedy að
bragði. Mörgum árum síðar sagði Salinger
opinberlega að Kennedy hefði vissulega látið
eyða þeim, einum í einu.
Í tíð Richards Nixons (sem sjálfur reykti aðeins
vindla við hátíðleg tilefni) áttu sér stað þau
tímamót að hætt var að bjóða upp á vindla
í Hvíta húsinu nema við sérstök tilefni. Það
var þó ekki fyrr en í tíð Bills Clinton sem
reykingar voru bannaðar í Hvíta húsinu og
allir ösku bakkar fjarlægðir. Clinton fékk sér
þó vindil af og til. Til eru myndir af honum
með vindla sem ekki er búið að kveikja í
en hann passaði sig á því að reykja aldrei á
almannafæri. Það er skjalfest að hann átti
Gurkha Grand Reserve vindla frá Dóminíska
lýðveldinu. Þeir vindlar eru ekki ódýrir, líklega
dýrasta vara sem framleidd er af Gurkha.
George W. Bush er líklega eini forseti Banda
ríkjanna sem hefur farið í áfengismeðferð.
Hann drakk (og drekkur sjálfsagt enn) þó
reglulega óáfengan bjór og fékk sér öðru
hvoru vindil. Eins og Clinton gætti hann þess
þó að reykja ekki á almannafæri.
Gurkha lét framleiða sérstaka línu af vindlum
fyrir innsetningarathöfn núverandi forseta,
Trump Presidente. Þeim var dreift til góðra
vina og samstarfsmanna forsetans en Donald
Trump reykir ekki vindla sjálfur.
Við myndum að öllum líkindum ekki sjá stjórn
málamenn í dag reykja vindla á almanna færi.
Það fer gegn lýðheilsumarkmiðum flestra
vestrænna ríkja og er auðvitað ekki jafn töff
og það þótti einu sinni. Margir þeirra fá sér
þó vindla í góðra vina hópi eða við hátíðleg
tilefni. Meira að segja íslenskir stjórnmála
menn kunna gott að meta þegar kemur að
vindlum. Það er önnur og lengri saga.
Höfundur er ráðgjafi, ritstjóri Þjóðmála og
áhugamaður um vindla.
Bill Clinton sást oft með vindil á golf vellinum, en aldrei vindil sem búið var að kveikja í. Uppáhaldsvindlar
hans eru taldir vera Gurkha Grand Reserve. Í hans tíð voru reykingar bannaðar í Hvíta húsinu og allir ösku-
bakkar fjarlægðir, þó ekki að hans frumkvæði.