Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 6

Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 6
4 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 *** Það þarf þó að hrósa því sem vel er gert. Í fjármálaráðherratíð Bjarna Benediktssonar hefur tekjuskattur einstaklinga lækkað um tæpa 25 milljarða króna á undanförnum árum vegna ýmissa breytinga sem gerðar hafa verið á tekjuskattskerfinu. Að auki hafði hann, þá í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forystu um skatt frjálsa ráð­ stöfun séreignasparnaðar vegna íbúðarkaupa. Sú ríkisstjórn felldi einnig niður flesta tolla og almenn vörugjöld. Auðlegðarskatturinn rann sitt skeið (skv. ákvörðun vinstri stjórnarinnar sem sat 2009­2013) og þrátt fyrir þrýsting frá vinstriflokkunum var hann ekki tekinn upp aftur. Allt voru þetta liðir sem skiptu heimilin í landinu verulegu máli. *** Aðrir skattar hafa þó hækkað eða staðið óáreittir. Tekjur ríkisins af virðisaukaskatti hafa aukist vegna breytinga á skattstofninum, lagðir hafa verið á grænir skattar (t.d. kolefnisgjald) og þá hefur hinn undarlegi bankaskattur fengið að standa þrátt fyrir að vitað sé að hann bitnar helst á tekjulægri einstaklingum og fyrirtækjum. *** Það er áhugavert að skoða hegðun ríkisins í skattamálum, ef svo má að orði komast. Ríkið er auðvitað ekki persóna en hagar sér samt með ákveðnum hætti eftir því hverjir stjórna því. Á liðnum árum virðist sem embættismenn móti frekar hegðun ríkisins en stjórnmála­ menn. Tryggingargjaldið er eitt af því sem dregur fram ákveðið hegðunarvandamál hjá ríkinu. Gjaldið var snarhækkað í kjölfar hins svo­ kallaða hruns haustið 2008. Allt í einu sá ríkið þarna skattstofn sem gildnaði hratt og það var, og er, erfitt að lækka hann. Tryggingar­ gjaldið hefur vissulega lækkað lítillega á undanförnum árum en í raun allt of lítið. Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi minnkað allverulega frá því að gjaldið var hækkað þá var ríkið búið að ráðstafa þeim upphæðum sem gjaldið átti að skila. Það var í raun orðið að þægilegum tekjustofni fyrir ríkið að innheimta hátt tryggingargjald þar sem heimilin í landinu finna ekki fyrir því með beinum hætti. Það eru bara atvinnu­ rekendur sem finna fyrir tryggingargjaldinu og þeir njóta ekki mikillar samúðar, hvorki á Alþingi né hjá embættismönnunum (sem aldrei þurfa að liggja andvaka yfir launa­ greiðslum). *** Annar þáttur í þessu er það sem einu sinni var kallað markaðar tekjur. Nú er það þannig að allar skattgreiðslur, hvort sem um er að ræða tekjuskatt, virðisaukaskatt eða aðrar „markaðar tekjur“ á borð við útvarpsgjald, vörugjöld, sérstaka skatta á eldsneyti eða önnur gjöld sem hið opinbera hefur lagt á skattgreiðendur, renna saman í einn pott, ríkissjóð. Það er síðan allur gangur á því hvort fjármagnið skili sér í þau verkefni sem þeim er ætlað. Þau gjöld sem innheimt eru af ökutækjum og eldsneyti renna til að mynda Það þarf ekki að fylgjast lengi með pólitískri umræðu til að heyra hverja má skattleggja enn frekar og hvar megi auka „skattstofna“ ríkisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.