Þjóðmál - 01.12.2019, Page 28

Þjóðmál - 01.12.2019, Page 28
26 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 Ventill á hagkerfinu Halldór Benjamín segir að staðan væri önnur ef aðeins væri búið að semja við þriðjung markaðarins. „En nú eigum við bara 3% eftir og þá vegur trúverðugleiki okkar málflutnings þungt og eykst einungis eftir því sem við fáum fleiri til þess að fylgja markaðri launastefnu,“ segir Halldór Benjamín. „Þetta er ekki bara launastefna SA, þetta er launastefna atvinnurekenda og launafólks – fólksins í landinu. Við verðum að virða það. Trúnaður SA er ekki bara við atvinnurekendur heldur við fólkið í landinu. Þegar SA gera kjarasamning við stóran hóp fólks felast í því fyrirheit um að samið verði á þeim grunni við alla aðra. Ef við horfum aftur í tímann sjáum við að íslenskur vinnumarkaður hefur einkennst af hinu margþekkta höfrunga hlaupi. Stéttir A til Æ semja en svo kemur Ö og semur um aðeins meira. Þá þarf að leið rétta allar hinar og svona gengur þetta endalaust fyrir sig. Á því höfrungahlaupi tapa allir og þeir mest sem minnst hafa á milli handa.“ Þá segir Halldór Benjamín að of snemmt sé að fagna sigri, en hann sé þó sannfærður um að Lífskjarasamningarnir muni skila bættum hag fyrir alla landsmenn. „Mín trú er að þegar atvinnurekendur og launafólk líta til baka eftir þrjú ár og meta hvort þetta hafi verið gott eða vont, þá hafi kaupmáttur aukist á tímabilinu – jafnvel þótt launahækkanir hafi verið hóflegar og rúmast innan getu hagkerfisins,“ segir Halldór Benjamín. „Á sama tíma og við gerum ráð fyrir auknum kaupmætti mun verðbólga yfir samnings­ tímann vera afar hófleg, sennilega undir verðbólgumarkmiði, og vextir lægri en í 20 ár. Á endanum er þessi samsetta leið launabreytinga, vaxtalækkana og ívilnandi aðgerða stjórnvalda öflug aðgerð til að bæta lífskjör landsmanna.“ Halldór segir að launahækkanir Lífskjara­ samningsins geri ráð fyrir hækkun mánaðar­ launa um 17 þúsund krónur á fyrsta ári – samtals um 90 þúsund krónur fyrir fólk á lægstu töxtunum á samningstímanum til ársloka 2022. Einnig munu lægri vextir bæta hag heimilanna verulega. Frá undirritun samninganna hefur Seðlabanki Íslands lækkað stýrivexti um 1,5 prósentustig, niður í 3,0%. „Flest heimili landsins skulda húsnæðislán og við hvetjum sem flesta til að endurfjármagna þau til þess að fá lægri vexti. Breytingar sem hægt er að ná fram þar eru margfaldar á við þær launahækkanir sem Lífskjarasamningur­ inn skilar í krónum talið og eru raunveruleg lífskjarabót,“ segir Halldór Benjamín. „Þess vegna var lagt upp með samsetta lausn og það tókst. Gamla nálgunin miðaði alltaf að því að ná sem mestri launahækkun og þá var horft fram hjá öðrum afleiðingum til skemmri tíma. Afleiðingum sem höfðu afleit áhrif á hag heimilanna í kjölfar aukinnar verðbólgu sem ýmist jók skuldir heimilanna eða hækkaði óverðtryggða vexti og skerti beint ráðstöfunartekjur heimilanna. Matið sem fer fram við eldhúsborðið á öllum heimilum landsins hlýtur að felast í því að vega og meta bæði launahækkanir og fjölda annarra þátta. Mér finnst einboðið að við þróum þessa nálgun áfram með verkalýðs­ hreyfingunni og sér í lagi er hagvaxtaraukinn sem kveðið er á um í Lífskjarasamningnum mikilvægur. Hann byggist einfaldlega á því að við skiptum gæðum samfélagsins ef vel gengur. Ef hagvöxtur á mann eykst, þ.e. ef verðmætasköpun eykst í hagkerfinu, þá skilar það sér inn í kjarasamninginn sem viðbótar­ launahækkun. Það er bæði skynsamlegt og sanngjarnt. Þetta er markmiðið með Lífskjara­ samningnum og er til þess fallið að styrkja sáttina í samfélaginu.“

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.