Þjóðmál - 01.12.2019, Qupperneq 43

Þjóðmál - 01.12.2019, Qupperneq 43
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 41 og bættust þeir þar við þá talsverðu flóru innflytjenda frá ríkjum utan Evrópu sem þar var fyrir. Raunar er um að ræða eina mestu fólksflutninga sem átt hafa sér stað á friðar­ tímum í sögunni. Hlutfall íbúa Vestur­Evrópu­ ríkjanna, sem fæddir eru erlendis, hefur því farið mjög vaxandi á undanförnum tveimur áratugum. Hefur þessi þróun valdið pressu á ýmsa opinbera þjónustu í ríkjum Vestur­ Evrópu, sem þegar er víða undirfjármögnuð vegna viðvarandi efnahagslægðar. Á sama tíma hefur íbúum í ýmsum ríkjum í austan­ verðri álfunni fækkað mikið og sum svæði nánast tæmst af ungu fólki. Ofan á þessa þróun hafa svo bæst örar tæknibreytingar, sem stundum virðast benda í átt til eins konar „Uber­væðingar“ hagkerfisins, þar sem hefðbundin störf hverfa og allir verða í staðinn sjálfstæðir verktakar án nokkurra þeirra réttinda og verndar sem launþegar fyrri tíma gátu reitt sig á. Efnahagskreppan hefur einnig afhjúpað það ójafnvægi sem ríkir í stofnanauppbyggingu sambandsins: fjármögnun almannatrygginga og annarrar opinberrar þjónustu hvílir að fullu á þjóðríkinu, sem á víða í erfiðleikum með að sinna því hlutverki vegna þeirra takmarkana sem bæði innri markaðurinn og ekki síst myntbandalagið hafa búið því. Sameiginlegur markaður án lágmarks­ samræmingar á skattkerfum hefur gert aðildarríkjum erfiðara fyrir að skattleggja atvinnustarfsemi. Sum aðildarríki hafa gert sérsamninga við alþjóðleg stórfyrirtæki, sem gert hefur þeim kleift að minnka skattbyrði sína, sem kemur þeim ríkjum sem reka umfangsmestu velferðarríkin illa. Með tilkomu evrunnar er allri aðlögun nú líka velt á veikgengislöndin og í þetta sinn ekki með gengisfellingu, sem ekki er lengur möguleg, heldur með hægri verðhjöðnun og óþarflega miklu atvinnuleysi. Þá hefur sú menningar­ breyting, sem einhverjir töldu að yrði í veikgengisríkjunum með upptöku evrunnar, ekki átt sér stað. Stofnanauppbygging sambandsins hefur þannig bæði aukið á vandann og gert ríkjum erfiðara fyrir að bregðast við honum. Fræði­ lega séð geta þeir sem missa atvinnuna í heimalandinu auðvitað leitað sér að atvinnu annars staðar í sambandinu; sá er helsti kostur „bræðslupottsins“. Vandinn er hins vegar sá, að evrópskur bræðslupottur getur, eins og augljóst er, ekki virkað á sama hátt og hann gerir í Bandaríkjunum því þjóðríki Evrópu eru allt annars eðlis en ríki Bandaríkjanna; þau hvíla á gömlum merg, hafa eigin sögu, menningu og tungumál. Margir geta ekki flutt til annars Evrópulands því þeir tala ekki annað tungumál en sitt eigið; aðrir vilja það einfaldlega ekki: þeir geta ekki hugsað sér annað en að búa í eigin landi, í því umhverfi sem þeir þekkja og sem gæðir líf þeirra merkingu. Af þessu leiðir að stofnana­ uppbygging evrópskrar samvinnu hlýtur að þurfa að vera með þeim hætti að hún hlúi að þjóðríkinu. Afleiðingin er stóraukinn stuðningur við ýmsar stjórnmálahreyfingar sem hlotið hafa viðurnefnið „popúlískar“. Ekki er þó ástæða til að gera lítið úr þessum hreyfingum. Efnahags­ legum þrengingum fylgir skiljanlegt ákall til hins opinbera um að koma þegnunum til verndar. En efnahagskreppan og ískaldur agi evrunnar hafa líka leitt kjósendum fyrir sjónir vanmátt þjóðríkisins og úrræðaleysi Evrópu. Í stað sambands sem veitir þjóðríkjunum skjól í harðnandi alþjóðlegri samkeppni um efna­ hagsleg gæði, eins og Mitterrand Frakklands­ forseti hélt fram að hún ætti að vera fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Maastricht­ samninginn, sem fór fram í Frakklandi árið 1992, er ESB í raun bara minni útgáfa af hnattvæðingarfyrirbærinu. Þversögnin í öllu þessu er svo sú að það var hin pólitíska miðja sem stóð að þessum róttæku breytingum og það hefur komið í hennar hlut að verja þær afleiðingar, sem af hafa hlotist. Hafandi ýtt bátnum úr vör virðist engin leið til annars en að róa hraðar í sömu átt. Flótti kjósenda af miðjunni er að hluta til viðleitni til að endur­ heimta þjóðríkið úr viðjum alþjóðahyggjunnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.