Þjóðmál - 01.12.2019, Page 61

Þjóðmál - 01.12.2019, Page 61
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 59 Á venjulegum degi vaknaði Churchill um klukkan átta, kveikti sér í vindli, fékk sér viskí og las blöðin. Þessi rútína hans tók um tvo tíma og eiginkona hans, Clementine, lét hann hafa sérstakan vindlasmekk til að forða því að fá ösku á náttfötin og sængurfötin. Það eru mörg dæmi þess að hann hafi eyðilagt jakka­ föt og gólfteppi vegna vindlareykinga. En allt byrjaði þetta einhvers staðar og einhvern tímann. Árið 1895, þegar Churchill var um tvítugt og genginn í breska herinn, var hann sendur til Kúbu til að fylgjast með sjálfstæðisstríðinu þar í landi. Þar og þá kviknaði áhugi hans á vindlum. Hann hafði þó nokkrum árum áður, þá aðeins 15 ára, byrjað að reykja sígarettur en lét fljótt af þeim slæma vana. Á Kúbu kynntist hann tveimur vindlategundum sem áttu eftir að fylgja honum alla ævi; Romeo y Julieta og La Aroma de Cuba. Báðir þessir framleiðendur hafa á síðari árum gert út á notkun Churchills á vörum þeirra, eðlilega. Þegar Churchill kom til Kúbu hafði Romeo y Julieta starfað í tæp 20 ár. Vöru merkið varð þekkt í Evrópu nokkrum árum eftir að Churchill byrjaði að reykja vindlana frá þeim. Það var þó ekki hann sem gerði þá fræga heldur sá sem keypti fyrirtækið nokkru síðar, Jose Rodriguez Fernandez. Hann fór í mikla söluferð um Evrópu og bauð viðskipta vinum sínum upp á sérhönnuð bönd utan um vindl­ ana. Fyrirtækið átti þó síðar eftir að nefna eina af tegundum sínum Julieta no. 2, eftir Churchill. Það gerðist þegar hann heimsótti Kúbu aftur árið 1946. Eftir byltinguna á Kúbu, þar sem tóbaksfyrirtækin voru þjóðnýtt, flutti fyrirtækið til Dóminíska lýðveldisins og selur þaðan vörur sínar inn á Bandaríkjamarkað. Churchill lifði stormasömu lífi, bæði í einkalífinu og á vettvangi stjórnmálanna, en stóð í þeirri staðföstu trú að vindillinn veitti honum ró og frið á erfiðum stundum. Það er meðal annars af þeirri ástæðu sem hann lét hanna sérstaka gasgrímu fyrir sig meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð, grímu sem hann gat reykt vindil í gegnum. Churchill reykti þennan La Corona-vindil (frá Kúbu) í ferð sinni til Parísar árið 1947. Churchill hafði flogið til Parísar og flugstjóri vélarinnar, William Alan Turnar, geymdi vindilinn í mörg ár á eftir. Eins og sést á myndinni er vindillinn sérmerktur Churchill. Árið 2017 var vindillinn seldur á uppboði fyrir 9.000 sterling- spund. The Romeo Y Julieta Churchill no. 2 er sjö tommu vindill (178 mm) sem framleiddur er í Dóminíska lýðveldinu. Hann er bragðmikill en flokkast þó sem meðalsterkur vindill. Þvermál vindilsins er 18,7 mm.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.