Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 76
74 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019
Magnús Lyngdal Magnússon
Beethoven og Fidelio
Klassísk tónlist
Þýska tónskáldið Ludwig van Beethoven
fæddist í Bonn árið 1770 en við vitum ekki
nákvæmlega hvenær. Af lestri kirkjubóka má
sjá að hann var skírður 17. desember það ár
og samkvæmt hefð voru börn á þessu land
svæði borin til skírnar degi eftir fæðingu.
Þetta (auk nokkurra fleiri atriða) hefur orðið til
þess að flestir fræðimenn hafa sammælst um
að Beethoven hafi fæðst hinn 16. desember
1770. Það þýðir að í desember árið 2020 eru
liðin 250 ár frá fæðingu tónskáldsins. Búast
má við að þeim tímamótum verði fagnað
víða um heim, til að mynda með fyrirlestrum,
tónleikum og upptökum.
Engum blöðum er um það að fletta að
Beethoven er í hópi frægustu tónskálda
veraldar. Það kom í hans hlut að brúa bilið
milli klassíska tímabilsins í tónlistarsögunni
og þess rómantíska og hann hafði gríðarleg
áhrif á sporgöngumenn sína. Fyrsta sinfónían
sem hann samdi er til að mynda háklassísk
en við erum strax farin að heyra áður óþekktar
ómstríður í 3. sinfóníunni. Frægustu verk
hans eru hverju mannsbarni kunn og nægir
þar að nefna upphafsstefið úr 5. sinfóníunni,
Für Elise og aðalstefið úr 4. kafla 9. sinfóníunnar,
Óðnum til gleðinnar. Þá má einnig tilgreina
Allegretto (2. kaflann) úr 7. sinfóníunni. Brot
úr þessum verkum geta allir raulað, hvort sem
þeir hafa áhuga á klassískri tónlist eða ekki.
Beethoven samdi fjölda verka. Hér má tína
til níu sinfóníur, fimm píanókonserta, fiðlu
konsert, 32 píanósónötur, 16 strengjakvartetta,
óperu og tvær messur svo eitthvað sé nefnt.
Tónskáldaferli hans er jafnan skipt í þrjú
tímabil og nær hið fyrsta fram til ársins 1802,
miðtímabilið frá 180212 og hið síðasta frá
1812 og uns Beethoven lést í mars 1827.
Ludwig van Beethoven fæddist 1770 og lést 1827.