Þjóðmál - 01.12.2019, Síða 80

Þjóðmál - 01.12.2019, Síða 80
78 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 Umræða Silfrið, 24. nóvember 2019. Hér frá vinstri má sjá Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, Steinunni Þóru Árnadóttur, þingmann VG, Egil Helgason þáttastjórnanda, Jón Gunnars son, þingmann Sjálfstæðisflokksins, og Atla Þór Fanndal sem hefur starfað sem blaðamaður. (Mynd: Skjáskot af vef RÚV). Það getur verið vandasamt verkefni að stýra umræðuþætti um stjórnmál og önnur mikilvæg þjóðfélagsmál. Flestir gætu verið sammála um mikilvægi þess að slíkir þættir varpi fram ólíkum sjónamiðum á málefni líðandi stundar, dragi fram upplýsta umræðu og færi áhorfendum heima í stofu einhvers konar heildarsýn yfir þau mál sem helst ber á góma – eða jafnvel stjórnmál í heild sinni. Það getur á köflum verið erfitt, enda mál oft flókin og margþætt, en það má í það minnsta gera sitt besta. Það er mýta að halda því fram að fjölmiðlar séu hlutlausir, en þeir geta og eiga að vera sanngjarnir. Á þessu er þó ein undantekning, því að í lögum um Ríkisútvarpið ohf. er skýrt kveðið á um skyldu til óhlutdrægni og fyllstu hlutlægni í allri umfjöllun og frétta­ flutningi. Eftirfylgni á þessum lögum er þó ávallt háð huglægu mati. Ríkisútvarpið heldur úti nokkrum þáttum sem ætlað er að sinna þessu hlutverki, t.d. Viku- lokunum á Rás 2 og Silfrinu í Ríkissjónvarpinu á sunnudögum. Í kynningu á Silfrinu á vef Ríkis- sjónvarpsins segir að stjórnendur þáttarins fái „til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni“. Síðastliðinn vetur gerði Þjóðmál úttekt á viðmælendum þáttarins. Þátturinn hefst iðulega með liðnum Vettvangur dagsins þar sem í flestum tilvikum fjórir viðmælendur ræða málefni líðandi stundar. Á síðasta vetri höfðu 142 viðmælendur tekið þátt í þjóðfélagsumræðu undir þessum lið, sumir oftar en einu sinni (sumir einstaklingar mæta oftar en einu sinni og er hver heimsókn talin). Hlutfall þeirra sem auðveldlega má flokka til vinstri var þegar þátturinn fór í sumarfrí 51%, alls 73 viðmælendur. Hlutfall hægrimanna var 19%, eða 27 viðmælendur. Aðrir voru ýmist flokkaðir á miðju (20%) eða óflokkaðir (10%). Frá því að Silfrið hóf aftur göngu sína í haust hafa 68 viðmælendur tekið þátt í umræðum undir liðnum Vettvangur dagsins, í 16 þáttum. Vinstrimenn halda sínum hlut, þar sem 50% viðmælanda þáttarins eru vinstrisinnuð. Hlutfall hægrimann hefur farið lítillega hækkandi. Alls mætti flokka 17 viðmælendur sem hægrisinnaða (25% hlutfall viðmælanda) og tíu viðmælendur á miðjunni (15%). Á síðunni hér til hliðar má sjá lista yfir viðmælendur frá því að þátturinn hóf göngu sína á ný í byrjun september og fram að jólafríi. Flokkun viðmælenda er vissulega aldrei yfir gagnrýni hafin og eflaust má deila um eitt og eitt nafn. Einhverjir hafa gagnrýnt Þjóðmál fyrir að setja einstaka fjölmiðlamenn undir liðinn „óflokkaðir“ og talið að þeir ættu frekar að flokkast vinstra megin. Flokkunin gefur engu að síður góða mynd af því hvernig þessi helsti umræðuþáttur ríkisins velur viðmælendur sína. Vinstrið heldur Silfrinu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.