Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Síða 28
Múlaþing
Svavar Stefánsson mjólkurbússtjóri við gamla
strokkinn. Ljósmynd: Guðmundur R. Jóhannesson.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
1950, stytti vart upp þar til slætti var lokið,
menn frestuðu göngum um haustið til þess
að bíða þess að það kæmi þurrkur og
bændur næðu einhverri uppskeru. Þessu
fylgdi svo harður vetur svo ekki gátu
bændur notað vetrarbeit og ofan á allt
saman geisaði skæð fjárpest. Þetta hefur
augsýnilega komið við hag bænda og ekki
síður kaupfélagsins.
Til að bregðast við þessu ástandi varð
t.d. að fækka búpeningi og vegna þess hve
nautgripir þurfa mikið og gott hey var
náttúrulega byrjað að skera niður í þeim
stofni, það þýddi að sjálfsögðu að ekki var
mikið hráefni til framleiðslu í rjómabúinu
og var starfsemi þess engin um þetta leyti.12
Arið 1952 var tilraunastarfsemi hafín í
rjómabúinu og kom í ljós að margt þurfti
endurbóta við, mestu skipti að tryggt yrði
að nægilegur rjómi fengist. Árið 1953 tók
svo búið formlega til starfa, og fyrstu fimm
árin fór framleiðslan heldur upp á við.13
Lesa má að framleiðsla búsins á sjötta
áratugnum hafi verið stopul, flutningakerfi
var ekkert og bændur áttu í erfiðleikum með
að vinna mjólkina heima á bæjunum, svo
ekki varð nein vemleg aukning á rjóma-
framleiðslunni og kröfumar um mjólkurbú
héldu áfram. Vélakosturinn var í upphafi
þannig að einn rafmótor snéri vélunum sem
vom strokkur og gerilsneiðari. I búinu var
200 lítra tankur og pökkunarvél fyrir smjör,
umbúðimar um smjörstykkin vom trékassar
sem tóku 50 kg.
Komið var með rjóma til búsins tvisvar
í viku, á þriðjudögum og föstudögum. Til
að að styðja við kröfumar um mjólkurbú
má nefna að á þessum tíma voru bændur í
Eiðaþinghá byrjaðir að selja mjólk til
Seyðisijarðar og mjólk var jafnvel flutt úr
Hjaltastaðarþinghá til Norðljarðar, auk þess
var hafin mjólkursala til síldarflotans. Því
jókst þrýstingur mjög frá bændum í þessu
máli.14
Árið 1956 var svo samþykkt að uppfæra
rjómabúið og gera það að fullkomnu
nrjólkurbúi, en eitthvað tafðist framkvæmd
þess vegna innflutningshafta.15 Það þurfti
að huga að mörgu við þessar breytingar.
Stofnaðar voru mjólkurflutningadeildir í
hreppunum, sem önnuðust mjólkurflutn-
ingana fyrstu árin. Einnig urðu nokkrir
árekstrar vegna mjólkursölu sem þegar var
í gangi, sbr. sölu bænda úr Eiðaþinghá til
Seyðisljarðar, sölufélagið Rauða stjarnan,
en það samdist um það að kaupfélagið tæki
þessa sölu í sínar hendur. í upphafi árs 1959
er allur undirbúningur á lokastigi og sam-
þykktir mjólkursamlagsins eru ræddar á
stjómarfundi kaupfélagsins í febrúar það ár,
var ákveðið að í stjóm samlagsins sitji tveir
menn frá mjólkurframleiðendum og einn
ffá stjóm K.H.B.16 Þeir sem skipuðu fyrstu
stjóm samlagsins voru þeir Bjöm Gutt-
ormsson frá Ketilsstöðum sem var
26