Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Blaðsíða 167
Bragi Björgvinsson
„Örlög kringum
sveima“
Allt frá því að ég fyrst heyrði talað
um atburð þann er Guðrún Magnús-
dóttir varð úti á Fjallsselsvegi, lék
mér forvitni á að vita nánar um ætt hennar
og örlög og ekki síst að kanna hinsta
hvílustað hinnar ólánsömu konu, en mikil
dulúð, í nokkrum atriðum, tengist hvarfi
hennar. Sú er m.a. ástæða þess að ég hripa
hér greinarkom þetta. í annan stað, hefur á
síðustu misseram komið ýmislegt nýtt í
ljós, m.a. það að í sumum skrifum um
hinstu ferð Guðrúnar, er ekki farið alls
kostar með rétt mál er varða nokkur atriði
þessa atburðar.
Fyrst er þá að geta um helstu æviatriði
Guðrúnar. í upphafi má geta þess að
Guðrán var 37 ára þegar hún varð úti.
Hrafnkell A. Jónsson héraðsskjala-
vörður tók í stórum dráttum saman slíkan
þátt í tengslum við frágang muna þeirra og
minja, sem fundust hjá beinum hennar og
komið var fyrir á Minjasafninu á Egils-
stöðum. Var Hrafnkell svo vinsamlegur,
áður en hann veiktist, að leyfa mér að birta
þessa samantekt hans, sem ég tek hér
orðrétta upp, utan smá kafla úr síðari hluta
pistils hans, sem er sleppt:
Guðrún Magnúsdóttir fæddist 1842 suður á
Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu, líklega í
Viðborði 28.6. og að líkindum tvíburi á móti
stúlku sem hét Sigríður. Hún átti einn bróður
eldri en alls átti hún átta alsystkin, dóttir
Magnúsar Guðmundssonar og fyrri konu hans
Ingibjargar Benediksdóttur. Hún fór í fóstur til
afa síns á Setbergi í Nesjum, Guðmundar
Kolbeinssonar og síðar var hún tökubam hjá
föðurbróður sínum á sama bæ. Á Setbergi var
hún til 18 ára aldurs. 1860 fer hún til foreldra
sinna að Fljótsbakka i Suðursveit, þaðan lá
leiðin í vinnumennsku hjá vandalausum.
Sumarið 1868 var hún vinnukona á Reyni-
völlum í Suðursveit. þar var henni samtíða
unglingspiltur, Einar Gíslason. Einar var 15
ára gamall, kominn vestan af Síðu, hafði verið
þar á sveit, en var nú ráðinn vinnumaður á
Reynivöllum. Nokkur bakfiskur virðist hafa
verið í stráknum, a.m.k. ól Guðrún dreng 20.
apríl 1869 og kenndi Einari hann. Drengurinn
hlaut nafnið Guðmundur, hann varð ekki
nema mánaðargamall, dó 24. mai. Einar þessi
Gíslason dmkknaði 34. ára gamall við Hálsaós
í Suðursveit. Hann giftist ekki en átti nokkur
böm með tveimur öðrum konum en Guðrúnu.
Meðal bama hans var Helgi Einarsson, sem
kenndur var við Melrakkanes. Þrátt fyrir allt
þykir mér líklegt að barnsfaðir Guðrúnar hafi
verið einhver eldri en Einar, nærtækast er að
líta til húsbónda þeirra, Eyjólfs hreppstjóra
Runólfssonar á Reynivöllum en hann átti böm
165