Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Blaðsíða 143
„Um stundarsakir settir af Guði í þennan heim...“
aprílmánaðar ársins 1872 og höfundur er að
ræðu þeirri er hér fer á eftir - þó ekki í heild
því niðurlag hennar hefur - illu heilli - ekki
varðveist.
Frá hendi Páls Eggerts Ólasonar má
fræðast nokkuð um séra Hjálmar (Islenskar
æviskrár II bls. 357). Þar segir m.a. að hann
hafí lært einn vetur hjá séra Þorsteini E.
Hjálmarsen, síðan ýmsum, en hafi þó
fremur hneigst til smíða en bókar. Hann
hafí verið tekinn í Bessastaðaskóla 1834 en
orðið að víkja þaðan 1836 „vegna veikinda
og lítilla framíara." Hafi hann síðan verið á
vist með „ýmsum“, síðast um tveggja ára
skeið hjá Jóni Sveinssyni, síðar presti að
Mælifelli, en hafí svo verið „felldur frá
prófi í skólanum 1841, síðast 3 vetur hjá
síra Hallgrími Jónssyni að Hólmum,
stúdent utanskóla úr Bessastaðaskóla 1844
með meðalvitnisburði." Fylgir síðan skrá
um hina ýmsu aðsetursstaði séra Hjálmars
ásamt ártölum.
Ekki telst þessi upptalning sérleg rós í
hnappagat Hjálmars Þorsteinssonar - en
lengi skal manninn reyna. Öllu ítarlegri og
uppbyggilegri mynd hans er að fínna í
Prestaœvum Sighvats Grímssonar Borg-
fírðings (1840-1930). Um séra Hjálmar
Þorsteinsson segir þar svo (ég vík skrifum
Sighvats hér til nútímastafsetningar og
hnika til greinarmerkjum til að gera textann
skilmerkitegri):
(Hjálmar) var sonur Þorsteins listasmiðs,
hreppsstjóra og sáttasemjara er lengi bjó á
Víðivöllum í Fnjóskadal Þorsteinssonar frá
Fjöllum í Kelduhverfi Grímssonar. Kona
Þorsteins en móðir séra Hjálmars var
Valgerður Indriðadóttir frá Fornastöðum
Jónssonar. Valgerður fæddist 14. október 1785
en dó á Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði 31.
janúar 1861. Móðir hennar var Jórunn
Jónsdóttir prests á Hálsi í Fnjóskadal,
f
Kirkjubœjarkirkja. Ljósm. Hulda Jónsdóttir.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
Þorgrímssonar prests á Hálsi Jónssonar.
Bróðir séra Hjálmars var Indriði hreppsstjóri,
gullsmiður og lögregluþjónn á Akureyri,
lipurmenni, þjóðhagi, glaðlyndur, gestrisinn
og vel þokkaður. Hann átti Þóru Jónsdóttur
prests í Grundarþingum 1839-1860 Jóns-
sonar. Hún var systir Helgu Jóhönnu Friðriku,
konu séra Hjálmars.
Séra Hjálmar er fæddur á Fomastöðum í
Þingeyjarsýslu 18. júlí 1814. Til sautján ára
aldurs vandist hann ekki við annað en
bændavinnu. 1830 komu foreldrar hans
honum fyrir hjá séra Þorsteini Erlendssyni
Hjálmarssen sem þá var prestur á Helga-
stöðum urn næstum því heilan vetur. Frá þeim
tíma segist hann hafa haft ýmsa kennara en
hann var alltaf heldur hneigður fyrir smíðar en
bóknám á fyrstu árum sínum. 1834 komst
hann í Bessastaðaskóla, þó lítt undirbúinn, en
eftir tvö ár - á hverjum hann hafði tvisvar
fallið í þungan sjúkdóm og stundum lent á
vonleysisvöl - var honum þaðan, með
samþykki og ráðum kennaranna, vísað í burtu
og var hann þá sá fjórði frá þeim neðsta í
141