Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 156

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 156
Múlaþing Bókaskápur Eiríks á Vífilsstöðum. Ljósmynd: Greinarhöfundur. Verði þinn en ekki vor vilji. Hugga þú að eins í mildi og náð, þá sem þú hryggir og lát sorgina snúast þeim til blessunar. Kom þú því einnig hýr með þína mildríku huggun og veit hana þeim, sem syrgja hjer hinn góða heimilisföður sem nú er hjer liðinn. Lát þá viðurkenna að það ert þú, sem hefur kallað hann burtu og gleðja sig við það, að í raun og veru er það allt gott sem þú gjörir, því að þínir vegir eru einber miskunn og trúfesti, þó að vjer tárfellum stundum í svip og opt lengi yfir að verða að fara frá. Blessa í náð sorgina hjer, þá getur jafnvel hún orðið til góðs. Heyr vora auðmjúka bæn í Jesú nafni. Amen. Sælir eru þeir framliðnu, sem í Drottni eru dánir. Þeir geta hvílt sig eptir sitt erfiði, því þeirra verk fylgja þeim. (Opinb. 14,13). Hvíldin er öllum kærkomin, sem þreyttir eru eptir unnið erfiði. Hún endumærir og hressir, styrkir og gleður. Hún er Guðs blessun til þess að reisa við kraptana eptir áreynslu. Erfiði lamar kraptana. Hvíldin er meðal Guðs til þess að veita þeim aptur þann styrk og stæling, sem þeir hafa misst. Þreytan dregur úr fjörinu og deyfir gleðina meðan á henni stendur. Hvíldin lífgar hvorttveggja aptur. En hvíld er ekki sama sem vinnuleysi. Það er ekki sama að hvílast og vinna ekki. Sá sem aldrei vinnur svo að hann þreytist, veit ekki í rauninni, hvað hvíld er. Auðvitað getur iðjuleysið sjálft þreytt. Það þreytir mann dálítið, að ganga um jörðina, þó að iðjulaus sje. Það mæðir á kröptunum, að eins það, að vera til á þessari jörð. Björgin eyðast við það, að veður og vindur blæs um þau. Því að endalok þessa heims eru þau, að hann ferst. Enginn getur því látið líf sitt halda stöðugt áfram á þessari jörð, með því að forðast að starfa og þreytast. Vjer sjáum svo ótal dæmi upp á það, að þeir verða ekki almennt eldri, sem ekki vinna, heldur en þeir sem starfa, jafnvel ekki eldri en þeir sem starfa mikið og daglega þreytast. Sá báturinn gengur best sem róið er með reglubundnu áralagi og með áhuga á, að ná að einhverju vissu takmarki, en ekki sá, sem látinn er berast eins og verkast vill fyrir straum og vindi og ekkert takmark er haft annað en það að fljóta. Á bátnum sem reglulega er beitt, þar verður hvíldin sjálf til að flýta förinni. Tíminn á milli áratoganna flytur hann áfram, og það í rjetta átt, þó að róðrarmennimir hafist ekki annað að en að búa sig undir næsta áratog. [Strikað er yfir þessa síðustu málsgrein í handritinu.] Enginn þyldi að beita stöðugt sama kraptinum, sem hann beitir í hverju áratogi. Það er hin reglubundna hvíld á milli þeirra sem hleypir lífi og fjöri og krapti í róðurinn og verður því 154
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.