Strandapósturinn - 02.01.2008, Page 64
64
Síðan bar rektor fram til sam-
þykktar eftirfarandi tillögu:
„Fyrir því er það álit fundarins, að
nemendur þessa bekkjar hafi brotið
svo mjög af sjer í þessu efni, að þeim
verði eigi leyfð seta í skólanum með
öðru móti en því, að þeir játi brot
sitt og lofi að beita ekki samtökum
gegn kennslu kennaranna nje fram-
kvæmdum á reglum skólans eða
reglugjörð þann tíma, er enn er eft-
ir af skólavist þeirra.“[7]
Þessi tillaga var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum, en
einn kennaranna, Þorleifur H.
Bjarnason, greiddi ekki atkvæði.
Á sameiginlegum skólafundi kennara og nemenda á Sal, mið-
vikudagsmorguninn 28. janúar, kynnti rektor samþykkt kennara-
fundar. Inspector scholae, Sölvi Blöndal, bað um leyfi til þess að
C-bekkingar væru á fundinum, en rektor lét vísa þeim út, C-bekk-
ingar væru ekki nemendur skólans þessa stundina. Kl. 13 hélt
rektor hins vegar sérstakan fund með nemendum 6. bekkjar C og
setti þeim úrslitakosti eins og að ofan var lýst, og fengu þeir sól-
arhring til þess að svara. Á fjölmennum fundi nemenda, sem hófst
kl. 1440 þennan dag, 28. janúar, undir stjórn Sölva, inspectors, var
„ultimatum“ rektors og kennarafundarins hafnað með yfirgnæf-
andi fjölda atkvæða og eftirfarandi bréf sent kennurum:
„Almennur skólafundur mótmælir, að 6. bekkingum C sé vikið úr skóla,
þótt þeir neiti að skrifa undir ultimatum það, er kennarafundur og rekt-
or hefir gefið þeim. Bekkurinn hefir komist að fullu samkomulagi við hr.
Pál Sveinsson, frönskukennara, út af upprunalegu deiluatriði um franska
stílagerð, og sér fundurinn enga ástæðu til, að mál þetta sé teygt lengra
eða látið ná yfir annað en það, sem deilan spratt upprunalega út af.
Ályktar fundurinn og, að 6. bekkingar C hafi fyllilega gert hreint fyrir
sínum dyrum um þetta atriði, fyrst við Pál Sveinsson og síðar í bréfi sínu
til rektors. Álítur fundurinn enga ástæðu til að leggja slíka ályktun, sem
Sölvi Blöndal.