Strandapósturinn - 02.01.2008, Síða 71
71
yrði fyrir þátttöku, að engar hömlur yrðu á efnisvali, en því hafn-
aði rektor. Erindi Guðmundar Arnlaugssonar um Upton Sinclair
varð því að falla niður og sömuleiðis ávarp Þorsteins, inspectors.
Það þótti svæsið, enda Þorsteinn rauður. Erlendur Vilhjálmsson
flutti inngangsorð í staðinn, og Helgi Scheving, Halldóra Briem,
Gylfi Þ. Gíslason og Óskar B. Bjarnason töluðu, en Óskar lauk
máli sínu með því að segja: „Að endingu vil ég taka það fram, að
í kvöld kemur hér ekki fram rétt mynd af skoðunum þeim, er í
skólanum ríkja, þar sem öll róttæk viðhorf eru útilokuð. Svo langt
hefur þetta gengið, að aðalumsjónarmanni skólans [inspector],
sem er kommúnisti, var meinað að flytja þá ræðu, sem setja átti
kvöldið með.“ Í dagbók sinni segir Pálmi, rektor, að óhug hafi
slegið á flesta, þegar þeir heyrðu þessa athugasemd í útvarp-
inu.[10]
Víkjum þá að vorinu 1934 og brottrekstri Eymundar. Spurður,
hvort hann hefði brotið af sér áður, svaraði Eymundur: „Nei,
aldrei.“ Þú hafðir tekið mikinn þátt í félagslífi, ritað í Skólablaðið,
talað á fundum, flutt erindi, meira að segja í nafni skólans í kvöld-
Aðstandendanefndin og rektor M.R.