Strandapósturinn - 02.01.2008, Page 105
105
,,Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni þinni,
og kauptu svo sóknarprestinn og jettu hann.“
Og þannig eyðilagði Steinn Steinarr ekki aðeins kvæði sitt held-
ur einnig bókargjöf mína, sem valin var til að heiðra minningu
forystumanna Lestrarfélags Tröllatungu- og Fellssafnaða, einkum
þingmannsins Ásgeirs Einarssonar og prestsins séra Halldórs
Jónssonar, fyrir þeirra frábæru menningarstörf í þágu félagsins
og átthaga sinna. Ég varð í fyrstu bæði gramur og fokreiður skáld-
inu fyrir að láta slíkan viðbjóð frá sér fara. En það var lítið hægt
að gera í málinu. Ekki var hægt að afturkalla gjöfina. Bókin var
árituð og afhent og hafði fengið sitt númer í Lestrarfélaginu.
Þetta var búið og gert og engu hægt að breyta. En að sjálfsögðu
varð atvikið ekki til að auka jólagleði mína þegar hátíð ljósanna
fór í hönd.
Þegar Steinn Steinarr gekk inn í Hressingarskálann rifjaðist
þessi atburðarás óðara upp fyrir mér þótt þrjú ár væru liðin síðan
hún gerðist. Ég var honum ennþá reiður og hafði ekki fyrirgefið
honum stráksskapinn. Hugleiddi ég um stund hvort ég ætti að
færa mig að borðinu til hans og benda honum með vel völdum
orðum á hvílíkan grikk hann hafði gert mér með jólakvæði sínu.
Af því varð þó ekki að ég svalaði reiði minni með því að hella
skömmum yfir skáldið vegna þess að einmitt í þeim svifum varð
mér ljóst að ég hafði Stein fyrir rangri sök. Hann var í raun hið
besta skáld þegar hann vildi það við hafa og hann var alls ekki
sökudólgurinn í þessu máli, heldur sá sem efnið valdi í ritsafnið,
nefnilega Jóhannes úr Kötlum. Hverju skáldi var bæði frjálst og
heimilt að skrifa hvað sem því datt í hug, hvort sem um fagurfræði
eða leirburð var að ræða. Hins vegar ber sá ábyrgð á ritsafni sem
velur til þess efnið. Hinn saurugi jólasálmur Steins Steinars var
valinn í Jólavöku og á því vali bar Jóhannes úr Kötlum fulla ábyrgð
en ekki skáldið Steinn Steinarr. Og líklega hafa fáir orðið jafn-
hissa og höfundurinn sjálfur þegar á daginn kom að kvæði sem
hann orti í hálfkæringi ef ekki fullum stráksskap var skipað á bekk
og gefið út með úrvali á jólaljóðum íslenskra skálda.