Strandapósturinn - 02.01.2008, Page 140
140
Lestrarfélag Árneshrepps var stofnað árið 1913. Það stóð í upp-
hafi ferils síns og lengi síðan fyrir dansleikjum í sveitinni. Skemmt-
anirnar voru aðallega haldnar til að safna fé til bókakaupa. Á böll-
um félagsins var ýmislegt til skemmtunar annað en dansinn. Árið
1916 hélt félagið ball á Gjögri, í húsi Sigurðar nokkurs Sveinsson-
ar [síðar hús Jóns Sveinssonar], sem þá bjó þar. Á þessari skemmt-
un var í fyrsta sinn í sveitinni bryddað upp á þeirri nýlundu að
bjóða upp böggla til fjáröflunar og skemmtunar.
Í tilefni þessarar samkomu orti Guðrún Rósa Guðmundsdóttir, f.
1873 – d. 1950, kennslukona á Finnbogastöðum, eftirfarandi brag
sem var sunginn á skemmtuninni. Bragurinn þótti hnittinn og vel
gerður og var lengi í minni fólks.
Hér er hann birtur eins og Eyjólfur heitinn Valgeirsson á Kross-
nesi mundi hann.
1. Lestrarfélag lærðu nú að stafa
litlum þó að sértu máske í vafa
um auð og gildi alls þess sem er skrifað.
Nú á að fara að kenna þér að „de klammera,“(halda ræður).
ef þú færð seinna lifað.
2. Árneshreppur æruverði gamli
ertu ekki hissa á þessu bramli?
Það á að halda uppboð hér á bögglum.
En ætli að það sé nú ekki bara,
tað í þessum kögglum.
3. Ónei, það er matur völd og viska,
sem varla í flýti hægt er á að giska,
er upp má vinda aldanna úr brunni.
En ætli það sé ei betra ráð,
að teyga drykk að munni?
Lestrarfélagsbragur
eftir Guðrúnu Rósu Guðmundsdóttur,
kennslukonu, á Finnbogastöðum.