Hugur - 01.01.2019, Page 50

Hugur - 01.01.2019, Page 50
50 Klas Grinell verja heimspekinginn fyrir því að draga rangar ályktanir en þær ber að setja fram með sem knöppustum og hagnýtustum hætti.17 Suhrawardi þróaði einnig sérlega flókna og áhrifaríka frumspeki ljóss ins. Sam- kvæmt henni er veruleikinn byggður úr óefnislegu ljósi sem ljómar af Ljóss- ins ljósi, þ.e.a.s. Guði. Þetta kerfi líkist mjög útflæðiskenningu nýplatonist ans Plót inosar (204/205–270), en á þeim er þó sá mikilvægi munur að öll þau ólíku stig og gerðir efnislegs og óefnislegs ljóss sem heimurinn samanstendur af mynda óslitna samfellu. Með svipuðum hætti og skynsemin flæðir út úr Hinu eina hjá Plót inosi getur Ljóssins ljós einungis haft bein áhrif. Þau áhrif felast í einföldu ljósi sem aðeins er frábrugðið Ljóssins ljósi hvað styrk þess varðar. Þetta einfalda ljós er í senn sjálfstætt og ósjálfstætt, óháð að því leyti að það lýsir af sjálfu sér en háð þar sem það orsakast af Ljóssins ljósi. Af þessu ljósi geta því bæði stafað önnur óefnisleg ljós sem og fyrsti efnislegi hluturinn, sem er einfaldur hnöttur.18 Sjónin fær ekki numið óefnisleg ljós. Aftur á móti eru allar lífverur með með- vitund að hluta óefnisleg ljós og einmitt af þeirri ástæðu meðvitaðar um sig sjálf- ar. Óefnisleg ljós eru ólík að styrk en öll af sama toga. Við upphaf keðjunnar er Ljóssins ljós, sem samsvarar hjá Suhrawardi óhreyfðum hreyfli Aristótelesar og nauðsynlegri nærveru hjá Ibn Sina. Ekkert rof er á ljósflæðinu og því er, að mati Suhrawardis, sál hvers manns tengd kosmosinu, sem ljósið sem streymir úr Ljóssins ljósi heldur saman.19 Með ljósafrumspeki sinni tókst Suhrawardi að tengja saman útflæðishugmyndir undir aristótelískum og nýplatonskum áhrifum og ljósamyndmál úr Kóraninum og súfisma, sem styrkti svo hvort tveggja.20 Af þeim sökum hefur heimspeki hans mikið guðfræðilegt gildi, enda hafði hún mikil áhrif, einkum innan sjíagreinar íslams. Í heimspekilegu tilliti felst gildi Suhrawardis annars vegar í því að hætta að byggja á Aristótelesi (384–322 f.o.t.) en fylgja Platoni (429?–347 f.o.t.) í staðinn, og hins vegar í því að hann gagnrýndi vægið sem skilgreiningin hefur í aristótel- ismanum og hampaði þess í stað kenningunni um „þekkingu með nærveru“. Enda þótt við blasi að Suhrawardi teljist á meðal helstu frumkvöðla í sögu ís- lamskrar heimspeki er honum ekki ætlað neitt rúm innan vestrænnar hugmynda- sögu. Hlutverk vestrænnar hefðar á Vesturlöndum Um miðja 19. öld settu ýmsir evrópskir fræðimenn fram svonefnt „arískt líkan“ sem skýrði fornöldina á nýjan og áhrifamikinn hátt. Ólíkt Forn-Grikkjum sjálf- um héldu þeir því fram að forngrísk menning hefði einkum orðið fyrir áhrifum 17 Suhrawardi, Hikmat al-Isharq, 1. hluti, 5 o.áfr. Ziai, Knowledge and Illumination, 42 o.áfr. 18 Suhrawardi, Hikmat al-Ishraq, 90 o.áfr. ShiabuddinYahya Suhrawardi, Hayakal al-Nur/The shapes of light (Louisville: Fons Vitae, 1998). Sjá einnig Plotinos, Mystikern och reformatorn. Valda delar av Enneaderna (Stokkhólmi: Bonnier, 1927). 19 Suhrawardi, Hikmat al-Ishraq, 90 o.áfr. 20 Meðal mikilvægustu áhrifavalda eða fyrirrennara Suhrawardis má telja Abu Hamid Muhammad al-Ghazzali, Mishkat al-Anwar/The Niche of Lights (Provo: Brigham Young Unviersity Press, 1998). Hugur 2019-Overrides.indd 50 21-Oct-19 10:47:04
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.