Litli Bergþór - 01.06.2022, Page 44
44 Litli-Bergþór
Þrjár kvenfélagskonur fóru á Landsþing KÍ í Borgar-
nesi í okt.
Kvenfélagið var með vinnustund í haustkransagerð
í október. Við keyptum alls konar efni og svo tíndu
konur ýmsan gróður úr sínu nærumhverfi og útbjuggu
þvílíkt fallega kransa af öllum stærðum og gerðum.
Við urðum því miður að hætta við jólamarkaðinn
annað árið í röð en í byrjun desember héldum við
jólafund í Skálholti þar sem við byrjuðum í kirkjunni
með organistanum og sungum jólalög og fórum
svo yfir í veitingahúsið, borðuðum og fórum í hinn
skemmtilega pakkaleik okkar.
Á árinu gengu 5 nýjar konur til liðs við okkur þannig
að í lok árs þá voru félagskonur 63 talsins.
Konur í kransagerð.
Kvenfélag
Biskupstungna
sendir félögum
sínum
og Sunnlendingum
öllum
óskir um gott
og gjöfult sumar
Þrátt fyrir mikinn tekjumissi
á árinu styrktum við nokkur
málefni; Heilsugæsluna í
Laugarási við kaup á þvagmæli,
gardínur fyrir eldri borgara í
Haraldarholt, ljós á Iðubrúna
og styrktum Bláskógaskóla í
Reykholti við kaup á útieldhúsi
fyrir nemendur.
Þannig að þegar upp var staðið
þá var bara ýmislegt um að
vera hjá okkur í Kvenfélagi
Biskupstungna, þrátt fyrir
þessar furðulegu aðstæður sem
við bjuggum við á árinu 2021. Ég vona svo sannarlega
að árið 2022 verði með öðrum hætti svo við getum
gert okkur enn fleiri glaða daga saman.
Ég hvet allar konur í Tungunum til að ganga í
kvenfélagið okkar, það er mannbætandi og ótrúlega
skemmtilegt að taka þátt í þessu starfi.
Andrea Rafnar, formaður.
Maggý þvílíkt ánægð með kransinn sinn.