Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 67
upplýsingar og borðApantanir
í 486 1110 eða 896 6450
Gleðilegt
sumar
náið með skólastarfinu í erlendum skólum og sjá líka
hvað við Íslendingar höfum það að mörgu leyti gott
þar sem við fáum 10 tíma í hverri viku til að undirbúa
starfið en þau ekki neinn. Það var okkur líka visst áfall
að sjá að í Gent voru börnin send þriggja mánaða í
ungbarnaskóla en er mögulega nokkuð sem hægt er
að venjast vel.
Útisvæðið í Tierlantuin.
Hér sofa börnin úti í Tierlantuin.
Starfsfólk Álfaborgar í heimsókn á ungbarnaleikskólanum Tierlantuin, talið frá vinstri: Gréta Gísladóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Katrine Reynaert
skólastjóri á ungbarnaleikskólanum, Lovísa Tinna Magnúsdóttir, Eyrún Ósk Egilsdóttir, Sabrine aðstoðarleikskólastjóri, Lieselot Michele Maria
Simoen, Sigríður Ósk Beck Víkingsdóttir, Lucie Jírová og Erla Jóhannsdóttir.
Um kvöldið lá leið okkar til baka til Amsterdam þar
sem við fengum laugardaginn til að skoða borgina,
versla smá og njóta lífsins áður en við flugum til baka
til Íslands eftir góða ferð.
Guðbjörg Þura Gunnarsdóttir,
verkefnastjóri við Leikskólann Álfaborg.
Litli-Bergþór 67