Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 9
í. drgangur . i. ársfjórdungur VAKA
Valdimar Jóhaimsson:
Fylgt úr lilaði
O" VÍÐA í heiminum mun stjórnmálabaráttan vera jafn hörð og
hér á landi. Flestir hlutir eru af þeim ástœðum vegnir á póli-
tíska vog og mœlikvarði flokkshagsmuna lagður á sérhvert málefni.
Engum hugsandi manni getur þó dulizt, að með ööilgjarnri tog-
streitu milli stétta þjóðfélagsins og skefjalausri innbyrðisbaráttu
landsmálaflokkanna er velferð íslendinga og þjóðarhagsmunum stefnt
í voða. Sameiginleg tunga, saga og menning, sameiginlegt þjóðerni
og þjóðskipulag, i stuttu máli: vé hins íslenzka anda, að ógleymdum
öllum timanlegum verðmœtum, sem þjóðin á sameiginlega, orsaka
það, að íslendingar verða og hljóta að standa sameiginlegan vörð
um stjórnarfarslegt og menningarlegt sjálfstœði sitt.
Aldrei hefir verið brýnni þörf á sameiginlegri varðstöðu allrar
þjóðarinnar um tilverurétt sinn en einmitt nú. — Öryggi smáþjóða
gagnvart hervœddum stórveldum hefir sjaldan verið minna en á yfir-
standandi tíma. íslendingar mega sín að sjálfstögðu lítið gagnvart
erlendum stórveldum, gráum fyrir járnum, en hversu óendanlega
miklu minna má sín ekki sundruð þjóð og ósamþykk sjálfri sér heldur
en samhent þjóð og einhuga?
En auk þess, sem hinu unga, íslenzka ríki stafar hœtta af erlendu
hervaldi, hafa nokkrir af þess eigin borgurum afneitað föðurlandi
sinu og sagt því þjóðfélagi, sem veitir þeim vernd og lífsmöguleika,
stríð á hendur. Nokkrir íslendingar, er hafa skipað sér undir merki
erlendra einrœðisherra, boða hér ofbeldis- og byltingastefnur, sem eru
af erlendum rótum runnar. Þessir menn sœkja fyrirskipanir til hinna
erlendu einrceðisherra um starfshœtti i málum íslendinga og
hafa að höfuðstefnumáli að kollvarpa stjórnskipulagi íslenzka
ríkisins.
3