Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Blaðsíða 11

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Blaðsíða 11
í. árgangur . 1. ársfjórðangur VAKA efni skal aðeins sagt petta: Framleiðslan, vinnan við að breyta auð- cefum náttúrunnar í hagnýt verðmœti, er grundvöllur velferðar og tilveru þessarar þjóðar sem annara. Þess vegna verða landsmenn allir að snúa bökum saman til verndar og viðreisnar framleiðslunni. Þess verður að sjá meiri stað en nú er raun á, að þjóðin geri sér Ijósa nauðsyn framleiðslustarfanna, að ekki sé stórum verr búið að þeim, er þau stunda, en hinum, sem greidd eru föst laun, eða taka á annan hátt „hlut sinn á þurru landi“, ef svo má að orði kveða. Hver og einn einasti þegn þjóðfélagsins verður að finna til þess, að afkoma hans byggist fyrst og fremst á hag þeirra atvinnu- vega, sem hagnýta auðlindir náttúrunnar. VAKA ber mikið traust til þorra islenzkra œskumanna, karla og kvenna, og hún mun snúa máli sinu til þeirra öðrum fremur. Enda telur VAKA það á engum rökum byggt, þegar œskufólkinu almennt er brugðið um óreglu, leti, hugsunarleysi eða ósjálfstœði, i stuttu máli: s k or t á manndómi. Meginhluti íslenzkra œskumanna gerir sér áreiðanlega vel Ijóst hverjar skyldur þeirra eru. Þeir eru albúnir að leggja sitt lið til þess, að íslenzka þjóðin megi verða frjáls og sjálfstœð um alla framtíð, að atvinnuvegir hennar séu efldir, menn- ing hennar treyst og aukin, skipti hennar við frœndþjóðirnar á Norð- urlöndum séu vinsamleg, að allir íslendingar, austan og vestan Atlantshafsins, vinni i sátt og samlyndi að framgangi sameiginlegra áhuga- og hagsmunamála. En œskufólkið á ekki aðeins skyldur við þjóðfélagið, það á einnig kröfurétt á hendur þess. Meginkrafan, sem hugsandi œskumaður gerir til þjóðfélagsins, er um jafnari lífsmöguleika fyrir fólkið í landinu, m. a. um jafnari aðstöðu launamanna og framleiðenda til þess að njóta lífsins. Undir þessar kröfur tekur VAKA, og þeim, ásamt öðrum áhugamálum þróttmikillar, starfssamrar œsku, mun hún fylgja fram. Fyrsta vetrardag 1938. Valdimar Jóhannsson. 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.