Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Qupperneq 16
VAKA 1. árgangur . 1. ársfjórdungur
Málmiðlun innan flokka og milli
flokka er þar algeng. Þegar stjórn
kemst í minnihluta, þá er önnur
stjórn búin til taks. Það er lík-
ast því að alltaf sé til varastjórn,
ef til þarf að taka. Og allt þetta
fer fram á þann hátt, að hendin
er rétt upp til marks um hugsun-
arháttinn, en ekki reidd til höggs.
Einveldin verða að hafa byltingu
í stað kosninga. Þar er stjórnar-
andstaðan samsæri og morð. Ör-
yggið hangir þar á einni taug, sem
er einvaldsherrann sjálfur.
Fjöregg lýðveldisins eru frjálsar
umræður, félagafrelsi og almenn-
ur kosningarréttur. Hin eina tak-
mörkun þessa þegnréttar, sem
hugsanleg er, er að svipta þá
réttinum til að flytja mál sitt og
skipuleggja starfsemi sína, sem
ætla sér að nota þessi mannrétt-
indi lýðfrjálsra þjóðfélaga til að
afnema þau. Það liggur í hlutarins
eðli að þeir hafa fyrirgert þess-
um rétti, sem mundu svipta aðra
honum, ef þeir mættu ráða. Flest
lýðræðisríki hafa þó ekki beitt
þeirri aðferð í fullu trausti þess,
að slík starfsemi veslist upp í hinu
heilnæma loftslagi lýðræðisins, og
hefir það víðast hvar gengið eftir.
Ætti sú aðferð að vera einhlít
hvar sem er á Norðurlöndum.
Þróunarsaga lýðræðisins er orð-
in löng hér á íslandi, og slitnaði
hún þó á tímum hins erlenda kon_
ungsvalds. Hjá óvopnaðri smá-
þjóð eru rætur lýðræðisins sterk-
ar. Fámenn þjóð veitir ekki þá
einangrun, sem er skilyrði fyrir
trúnni á óskeikulleik einræðis-
herranna. Auglýsingaskrum og
múgæsingar hafa þar ekki góðan
jarðveg. Umhverfið er hér gott.
Úthafið og hinar öruggustu lýð-
ræðisþjóðir, sem liggja í boga í
kring um ísland, Bandaríkin,
Bretland og Norðurlönd, er hið á-
kjósanlegasta nágrenni. Lýðræð-
þroski þjóðarinnar er okkar
vernd, bæði innan lands og utan,
en ekki sá „réttur“, sem býr í
sverðseggjum.
Ásgeir Ásgeirsson.
— VAIiA ------------------------------------------------------------
er nokkru síðbúnari en til var ætlazt í fyrstu. Liggja til þess ýmsar ástæður,
en þó einkum það, að ávallt tekur lengri tíma að gefa út fyrsta hefti tima-
rits en þau, er á eftir fylgja. í byrjun er margs að gæta. Ákveða þarf brot,
pappír, leturtegundir, útlit og efnisskipun, svo að nefnt sé eitthvað af því,
sem taka þarf afstöðu til, þegar nýtt tímarit hefur göngu sína.
Hinir mörgu áskrifendur Vöku eru hérmeð beðnir afsökunar á þessum
drætti og því fyllilega treyst, að þeir láti ritið í engu gjalda hans. Áskrif-
endur Vöku hafa heldur ekki til einskis beðið. Nú, þegar fyrsta hefti ritsins
kemur út, er það orðið eitt af útbreiddustu tímaritum á landi hér. Form
þess og útlit er með nýstárlegum blæ og það er vandað að efni og frágangi.
Að Vaka heldur úr garði svo vel búin sem raun er á, ber fyrst og fremst
að þakka öllum almenningi, sem tekið hefir henni tveim höndum.
10