Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 23
1. árgangur . 1. ársfjórdungur
TAKA
rækta hin fornu Berurjóður sveit-
anna, ekki líka stundum sýnt of
lítinn skilning á hinum nýju við-
horfum og nýju kjörum bræðra
sinna og systra á mölinni? Ég
fæ ekki séð neina nauðsyn á því,
að fólkið við sjó og í sveit þurfi
eða eigi að skipa sér í andstæðar
fylkingar. Þvert á móti eru þar
fyrir hendi víðtækir möguleikar
til samvinnu og samstarfs báðum
til hags. Framtíðin mun skera úr
um það, hvort eða hvernig það
tekst um leið og hún sker einnig
úr um það, hvaða meginstefnur
hin nýja menning á mölinni tek-
ur.Ég get ekki neitað því,að ég ber
nokkurn ugg í brjósti og get ekki
látið mér á sama standa um það,
hvernig hin nýja menning ræðst
og í hvaða farvegi hún fellur.
Jarðvegurinn er ennþá grunnur,
en þá er um leið einnig grunnt
á Faxahöfðinu. Þar þarf því að
vera vel vakandi og hlúa jafnan
sem bezt að kjarnamesta gróðrin.
um. Þar þarf að rækta ekki aðeins
ófrjóa og grýtta jörð, heldur einn-
ig, og ekki síður, fólkið sjálft, svo
að komið verði í veg fyrir það
tjón, sem er stærst alls, að hugir
fólksins sjálfs verði blásin auðn,
og Faxahöfuðið í mönnunum
sjálfum, gráðugt og grimmt dýrið,
komi í ljós. Því að það er dýrið
í mönnunum, sem ætíð hefir veitt
og ætíð veitir siðmenningunni hin
dýpstu sár.
Völuspáin forna gildir alla
tíma. Ekkert Berurjóður er svo
öruggt, að ekki leynist þar Faxa-
höfuðið og naðran bíti þann, sem
sýnir því hirðuleysi og ótryggð.
Þeirri spá verður ekki hrundið
með því að ljósta völuna nasa-
högg að dæmi Örvar-Odds. Til
þess að koma í veg fyrir völu-
spána, er ráðið aðeins eitt, að
þjóðin sjálf, þjóðin öll, unni
Berurjóðrunum og vilji einhverju
fórna og leggja í sölurnar til
þess að vernda þau.
------------------------------------------------- Vökuineiiii
vilja vinna í nánu samstarfi og vinsemd við bindindisfélögin og ungmenna-
félögin í landinu". — Þannig hljóðar 10. gr. stefnuskrár Vökumanna. Eigi
að síður hafa þó þær raddir heyrzt, að milli Ungmennafélagsskaparins ann-
ars vegar og félgssamtaka Vökumanna hins vegar hljóti að vera samkeppni,
hvort tveggja séu æskulýðssamtök með svipaða meginstefnu og rígur milli
þessara félagssamtaka sé því óumflýjanlegur.
Slík ummæli sem þessi eru á algerum misskilningi byggð. Vökumenn hafa
kosið skóla landsins sem vettvang fyrir félagssamtök sín, en þar eru ekki
starfandi ungmennafélög, svo sem kunnugt er. Einn skóli er þó undantekn-
ing frá þessu. Þar hefir jafnan starfað ungmennafélag, enda hafa Vöku-
menn enga tilraun gert til að stofna þar deild úr sínum félagssamtökum
og ætla ekki að gera.
Árekstrar milli Vökumanna og ungmennafélaga þurfa því ekki, og munu
ekki eiga sér stað, enda óska Vökumenn einskis framar en eiga vinsamleg
skipti við Ungmennafélagshreyfinguna sem annan lýðræðissinnaðan félags-
skap í landinu.
17