Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Side 27
1 ■ drgangur . 1. ársfjórðungur TAKA
anlega viö harðstjórn og kúgun.
Það er í Tyrol, landi Mussolini.
Þar gengur ófrelsið svo langt, að
íbúunum er ekki leyft að bera
sín eigin nöfn, sem víða eru þýzk
og af þýzkum uppruna, heldur
gert að skyldu að færa þau til
ítalsks máls, svo að þjóðernisein-
kennin þurrkist sem vandlegast
út. Kúgara þessa fólks, Mussolini,
hefir verndarvættur hins „þýzka
frelsis", Adolf Hitler, nefnt sinn
eina persónulega vin í hópi mik-
ilsráðandi erlendra stjórmálaleið.
toga, þann eina, sem skildi
sameiningar og frelsisþrá Súdet-
Þjóðverjanna í Tékkóslóvakíu!
Minnismerki reist á Suður-Jótlandi
yfir danska hermenn, sem féllu í síðustu
heimsstyrjöld.
Á seinni hluta síðustu aldar áttu
Danir í ófriði við Þýzkaland og
Austurríki. Þeir biðu lægra hlut,
og urðu að láta af hendi Suður-
Jótland. Rúmum fimmtíu árum
síðar, eða árið 1920, fengu þeir
nokkuð af landi þessu aftur. Með
Versalafriðnum áttu þeir þess
kost að fá miklum mun stærra
landsvæði, en þeir sýndu þau
hyggindi, að kjósa það eitt af
Kristján X ríður yfir gömlu landa-
mærin. — 1920 sameinaðist allmikill
hluti Suður-Jótlands aftur Danmörku.
Þá voru mikil hátíðahöld í landinu, er
náðu hámarki sínu, þegar konungurinn
reið inn yfir landamærin og tók móti
hollustu þegna sinna, þeirra, er búið
höfðu undir erlendri stjórn í 56 ár.
Myndin sýnir Kristján X á fannhvítum
hesti, þar sem Suður-Jótar taka á móti
honum við gömlu landamærin. Hvergi
mun konungur njóta slíkrar lýðhylli í
ríki sínu sem í Suður-Jótlandi.
sínu gamla landi, er fékkst við
frjálsa atkvæðagreiðslu íbúanna.
í þessum hluta ríkisins búa um
180 þúsundir manna. Af þeim eru
h. u. b. 27 þúsund þýzksinnaðir,
þ. e. menn, sem eru hlynntir sam-
einingu við Þýzkaland. En aðeins
þrjár þúsundir þeirra hafa þýzka
tungu að móðurmáli. Hinir tala
dönsku.
Með augum gestsins, sem ferð-
ast um Norður-Slésvík, en svo er
líka nefnt land það, sem Dan-
mörk endurheimti 1920, er ekki