Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 35

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 35
1. árgangur . 1. ársfjórðungur TAKA hafa lífsframfæri sitt af föstum launum, æ betri kjör, samtímis því, sem hagur bóndans og sjó- mannsins fer e. t. v. versnandi. Vökumenn vænta þess, að með sameiginlegu átaki hins starfs- fúsa og einbeittara hluta æsk- unnar, ásamt skynsamlegum að- gerðum þess opinbera, megi tak- ast að útrýma atvinnuleysi æsk- unnar, sem nú er alvarlegur þrándur í götu þroska hennar. Þá væri um leið ráðin bót á miklu böli, ónytjungshættinum, vilja- leysinu, letinni. Til þess telja Vökumenn róttækar ráðstafanir nauðsynlegar. Vökumenn vilja vinna gegn þeim hugsunarhætti, sem því miður er allt of útbreidd- ur, að vilja heldur þiggja at- vinnuleysis- eða sveitastyrk í kaupstað, heldur en sæta atvinnu annars staðar, þótt ekki sé „taxta- kaup“ í boði. Vökumenn vilja efla sjálfsbjargarhvöt æskunnar, en um leið félagslegan þroska og samstarfshug. Vökumenn vilja hafa í heiðri allt, sem þjóðlegt er og íslenzkt. Þeir vilja innræta félögum sínum ættjarðarást og víðsýni til að vinna fyrir land sitt og þjóð, sem ábyrgðir borgarar þjóðfélagsins. Vökumenn telja það veikjandi fyrir þjóðina, ef hún hættir að bera virðingu fyrir þúsund ára gamalli menningu íslendinga, sem kynslóð eftir kynslóð hefir átt þátt í að skapa. Þeir telja allt það, sem miðar í þá átt að veikja þjóðernis. tilfinningu og heilbrigðan metnað íslendinga, þjóðhættulega starf- semi. — Vökumenn vilja sam- eining allra íslendinga, hvar sem þeir eru búsettir, um að varðveita þann menningararf, sem þessi kynslóð tekur við, og byggja á honum framtíð þjóðarinnar og framfarir. Hér að framan hefi ég drepið á þýðingarmestu atriðin í stefnu Vökumanna. Þeir leggja kapp á að stofna í skólum landsins sam- fellda félagsheild, sem í samvinnu við allar lýðræðissinnaðar félags- heildir í landinu geti átt þýðing- armikinn hlut að framgangi þeirra mála, sem að dómi Vöku- manna eru þjóðinni til heilla og farsældar. Mörg hundruð manna, karla og kvenna hafa gengið í sveitir Vökumanna. Og ennþá fleiri hafa hyllt markmið þeirra með því að heita Vöku stuðningi, gerast á- skrifendur að henni og greiða götu hennar á ýmsan hátt. í nafni Vökumanna íslands býð ég alla þessa mörgu velunnara vora vel- komna til samstarfs um fram- gang sameiginlegra áhugaefna. Guðmundur Gíslason, forseti Vöku- manna íslands, er fæddur að Ölfusvatni í Grafningi árið 1900. Lauk kennara- prófi 1923. Stundaði nám í Danmörku og Noregi. Kennari í Reykjavík og að Laug- arvatni. Skólastjóri að Reykjum í Hrúta- firði síðan haustið 1937. 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.