Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Síða 54
VAKA í. argangur . 1. ársfjórðungur
Magnús .1 óiissoii:
II viki'iii<» á að veriula
lýðræðið?
heilagt. Það er stjórnarform, eitt
af mörgum, sem menn hafa reynt.
Einveldið var líka á sínum tíma
talið heilagt, svo heilagt, að hegna
varð hverjum þeim, er móti því
dirfðist að mæla.
Það er sjálfsagt engin stjórnar-
aðferð til, sem ekki fær á sig svo
og svo mikinn helgiblæ. En þau
hafa orðið að víkja fyrir því. Þau
eru bara fyrst klædd úr helgi-
skrúðanum og svo rekin á dyr, ef
þau eru hætt að geta fullnægt
þeim kröfum, sem gera verður
til stjórnarfars.
Það, sem því þarf að gera, ef
menn vilja vernda lýðræðið, er að
láta lýðræðið fullnægja sem bezt
þeim kröfum, er gera verður til
hvers stjórnarfars. Ef lýðræðið
getur leyst vandamálin og látið
fólkinu líða vel að því leyti, sem til
stjórnarhátta kemur, þá er því
engin hætta búin.
Vinir lýðræðisins eru því þeir
einir, sem eru vandlátir um
stjórnarsiðu alla og kröfuharðir í
garð þeirra, sem með völdin fara.
48
Margir lýðræðissinnar eru á-
hyggjufullir út af því, hvern.
ig vernda eigi lýðræðið á þessum
háskatímum, þegar ráðizt er að
því frá tveim hliðum, og einræðis.
ríkin myndast hvert af öðru.
Sumir virðast halda, að lýðræð-
ið verði bezt verndað með því að
gera það að helgum dómi, nokk-
urskonar skurðgoði, þar sem menn
eigi að falla fram í tilbeiðslu.
Aðrir halda, að lýðræðinu sé
mestur greiði gerður með því að
úthúða einræðinu, einræðisríkj-
unum og einræðisherrunum.
Og svo þekkjum við það, hvern_
ig þessi hugsjón lýðræðisins er
notuð í stjórnmálabaráttunni,
innan um önnur fögur vopn, sem
þar er barizt með, notuð til þess
að koma einræðisorði á aðra og
þakka sínum sæla fyrir „að ég er
ekki eins og aðrir menn“.
Ég held tæplega að þetta sé
bezta og tryggasta vörn lýðræðis-
ins.
Lýðræðið er ekkert sérstaklega