Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Qupperneq 60
VAKA 1. árgangur . 1. ársfjórdungur
OuðmiiiKlur <»ís1umoii:
Atliygltsverd
íiieimiiigarstarfseiui
Austasta og fremsta byggð í
Húnavatnssýslu heitir Ból-
staðarhlíðarhreppur. Þar eru nú
32 jarðir í byggð, en um 11 hafa
farið í eyði á síðasta mannsaldi.
Örlög þessa litla hreppsfélags
er skýrt dæmi um þá „helstefnu“,
sem svo mjög hefir grafið um sig
í þjóðlífi íslendinga á síðari ár-
um, flóttann úr sveitunum, frá
framleiðslunni — erfiðinu — til
„fínni“ og hægari starfa í kaup-
stöðunum.
í þeirri sögu kemur fram eftir-
tektarverður munur á skapferli
og lífsstefnu fólksins í landinu.
Annarsvegar eru þeir, sem skortir
trúna á íslenzka mold, möguleika
íslenzkra sveita, láta undan síga
inn fyrir múra kaupstaðanna, og
bætast þar í hóp vinnuþega og
launalýðs eða atvinnuleysingja.
Hinsvegar eru þeir, sem vilja
stöðva flóttann, snúast til varn-
ar og skapa nýtt líf og nýja mögu-
leika í byggðum landsins. Þessir
menn vilja ekki yfirgefa jarðir
sínar og óðöl, ofurselja þau brask-
inu eða auðninni. Þeir vilja varð-
veita þau handa afkomendum
sínum, skila þeim í hendur næstu
54
kynslóðar eigi verr úr garði gerð-
um, en þeir tóku við þeim. Þessir
menn eru landvarnarmenn ís-
lands. Þeir hopa ekki fyrir erfið-
leikum dreifðra byggða, heldur
sameinast í karlmannlegum átök-
um um afkomumöguleika og
menningu héraða sinna.
Þannig hafa þeir farið að, sem
enn sitja að búum sínum í Ból-
staðarhlíðarhreppi. Þeir hafa
unnið upp það, sem tapaðist, með
því að treysta fylkinguna. Þeir
hafa aukið samstarf og félags-
anda innan héraðs, og með því
dregið úr biturleik lífsbaráttunn-
ar. Og síðast en ekki sízt hafa
þeir treyst tengsli yngri mann-
anna við átthaga sína.
Einn merkilegur liður í þessari
starfsemi, er stofnun og starf
Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps.
Með dæmafárri elju og áhuga
hefir söngelskum og félagselsk-
um mönnum í þessum fámenna
hreppi tekizt að halda uppi
miklu sönglífi þar um þrettán ára
skeið, eða frá því að kórinn var
stofnaður árið 1925. Stofnendur
hans voru átta talsins, allir úr
hreppnum. Nú eru sextán menn