Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Qupperneq 65
7. árgangur . 7. ársfjórðungur V A li A
geta foreldrarnir undir öllum
venjulegum kringumstæðum, haft
mest áhrif á það, enda eiga
þau að hafa það að öðru jöfnu.
— Hálfan annan áratug hefir all-
mikið af starfi mínu verið í þágu
barna innan skólaaldurs. Sem
þátttakandi í störfum Barnavina-
félagsins Sumargjöf hefi ég haft
sérstaklega góða aðstöðu til að
kynnast þessum málum. Og eftir
margra ára athuganir þykist ég
hafa orðið var við alvarlega veilu
í viðleitni okkar á sviði uppeldis-
málanna. Hún er sú, að vér sjá-
um ekki verandi og verðandi for-
eldrum fyrir œskilegum undir-
búningi undir uppeldisstarf
þeirra. — Rannsóknir hafa þrá-
faldlega leitt í ljós, að uppeldis-
vandræði stafa oft af mistökum
þeirra, sem uppeldið hafa á hendi.
Og þó að fleiri hafi áhrif á barnið
en foreldrarnir, þá hafa þau að
öðru jöfnu bezta aðstöðu til að
fyrirbyggja vandræði í upphafi.
Þess vegna þurfa þau að gera sér
far um að vera sterkir, samtaka
og hollir áhrifavaldar á barnið.
Þótt ekki sé að efast um góðan
vilja foreldranna, þá sýnir reynsl-
an, hin síendurteknu mistök og
uppeldisvandræði, að þörf er á að
auka uppeldisþekkingu foreldr-
anna og glæða ábyrgðartilfinn-
ingu þeirra. Barnssálin er svo við_
kvæm og svo óafmáanleg þau
áhrif, er hún verður fyrir, að við
leitni uppalendanna verður á
hverjum tíma að vera örugg og
markviss og miðast eingöngu við
það, sem barnið þarf og því er
fyrir beztu.
En hvaða mat leggjum vér á
köllun foreldranna og hvaða und-
irbúningur er þeim fenginn til
upp eldisstarfsins ?
Áður en þessari spurningu er
svarað, er fróðlegt að athuga,
hvaða kröfur eru gerðar til
manna í hinum ýmsu starfsgrein-
um nú á tímum. Með aukinni
verkaskiptingu og auknum kröf-
um um hraða, öryggi og vörugæði
— auk samkeppni um störf — er
stöðugt hert á kröfunum um full-
komið sérnám þeirra, sem verkin
eiga að vinna og fyrir þeim að
standa. Vill nokkur yður, lesendur
góðir, aka í bíl nema lærður bíl-
stjóri sitji við stýrið? Og mynduð
þér fást til að ferðast í flugvél,
ef ólærður maður stjórnaði
henni? Þess er krafizt, að maður,
sem á að stjórna brúarsmíði eða
byggingu hafnargarðs, hafi þekk-
ingu til að reikna út styrkleika-
þörf slíkra mannvirkja. Verk-
fræðingur eða lærður múrari,
verður að vaka yfir kaldri steypu-
leðjunni, sem fyrir hans aðgerðir
á að breytast í hættulaus og holl
híbýli. Og ef þér verðið veik og
þurfið að leita til læknis, hverjar
kröfur gerið þér til hans? Er ekki
alls staðar sama sagan? Jú,
ákveðin þekking er hvarvetna
heimtuð til þess að mönnum sé
59