Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 79

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 79
1. árgangur . 1. ársfjórdungur VAKA lífskjör eiga drjúgan þátt í því að gera fólkið vaxtarfegurra, frjálslegra og djarfmannlegra í framgöngu .... En hverjar vonir má svo tengja við þetta unga fólk? Sennilega er eldra fólkið ekki sem ánægðast með eftirkom- endurna, en reynslan leiðir í ljós á sín- um tíma, hvernig það fólk, sem nú er ungt, snýst við vandamálunum, þegar framkvæmdavaldið verður lagt í hendur þess. En maður skyldi ætla, að frjáls samtök og samvinna í atvinnumálum, eigi vaxandi gengi að fagna meðal þjóð- arinnar. Vegna fámennis og fátæktar er Islendingum öðrum þjóðum nauðsyn- legra að leysa vandamál sín í samein- ingu og bróðerni.... “ Hallgeir Elíasson. „íslenzk nútímaæska á við betri skil- yrði að búa, en áður eru dæmi í sögu þjóðarinnar, þess vegna verðum við að gera til hennar miklar kröfur. Það er æskan, sem á að erfa landið, það er hún, sem á að taka við störf- um forfeðranna. Og við unga fólkið verðum um fram allt, að sýna, að við sé- um ekki óverðug þeirrar mennt- unar og þeirra góðu skilyrða, sem við höfum orðið aðnjótandi. Við verðum að sýna, að það sé táp í okkur, að við séum fær um að taka við störfum feðra okkar og mæðra, að ekki hafi verið á glœ kastað þeim verðmætum, sem varið hefir verið til þess að veita okkur gott uppeldi. íslenzk æska verður að ganga óhikað til verks, og það verð- úr að vera takmark hennar að nema ný lönd á vegi framfara og menningar. Það eru næg viðfangsefni fyrir hendi, nægilegt rúm fyrir starfsorku á hvaða sviði sem er, og fjöldi óleystra vanda- mála. — Það er erfitt í ári eins og nú standa sakir. En æskan má ekki láta hugfallast, því að ef hún missir traust- lð á sjálfri sér, er úti um hana. Við yerðum að horfa hugd.iörf til fyrir- heitna landsins, til framtíðarinnar. Og þó að virðist „steini þungum lokuð leið fyrir“, megum við ekki gleyma því, að við búum í lítt numdu landi, sem hefir fulla þörf fyrir æskuþrek okkar og starfsorku.“ Inaibjörg Erlendsdóttir. „.... Þegar gerður er samanburður á þeim möguleikum, sem æskumaður nú- tímans hefir til þess að ákveða framtíð sína, velja og hafna, og á framtíðar- möguleikum hinna eldri kyn- slóða, þá er auð- sær mjög mikill mismunur. Fyrr á tímum átti æskumaðurinn naumast um annað að velja en halda áfram starfi föður síns. Bóndasonurinn átti vart annara kosta völ en verða bóndi .... Nú er viðhorfið stórum breytt. Skólar hafa risið upp fyrir almenning, nýjar atvinnugreinar hafa bætzt við og framtíðarmöguleikar æskufólksins eru mikið fjölbreyttari nú en þá. Gata æskunar hefir verið rudd og sléttuð. Hvernig er svo viðhorf íslenzkrar nú- tímaæsku til framtiðarinnar? Því verður naumast svarað í fljótu bragði. En frá mínu sjónarmiði hefir æskan gleymt skyldu sinni. Hún vill fyrst og fremst njóta lífsins, eiga hæga daga og áhyggjulitla. Hugsanir hennar eru ekki tengdar starfi, ekki hugsjónum eða bar- áttu fyrir þeim, heldur auknum lífs- þægindum, auknum möguleikum til þess að njóta lífsins — Æskan á að vísu til þrótt, en henni hefir láðst að temja sér að beita honum. Hún hefir gleymt, að innan skamms er það hennar að taka við starfi eldri kynslóðarinnar, halda áfram, þar sem hún hættir. Hún lætur hag lands og þjóðar þoka fyrir sjálfselsku- fullum kröfum um meiri þægindi. En æskan vaknar, hennar vitjunar- tími mun koma. Þá metur hún að verð- leikum það feikna starf, sem hugsjóna- menn fyrri kynslóða hafa fyrir hana unnið, og þá mun koma í ijós, að hún er þess starfs ekki óverðug. Þá verður hag lands og þjóðar skipað framar öllu öðru, 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.