Borgfirðingabók - 01.12.2005, Blaðsíða 196
194
Borgfirðingabók 2005
hans var skipstjóri á M/S Súlunni EA-300 og lengi kenndur við hana.
Hann er afi Samherjabræðranna á Akureyri.
Þau togskip sem settu fisk yfir til okkar á Eldborg voru Snæfell
EA-740, skipstjóri Egill Jóhannsson, bróðir Freymóðs listmálara og
dægurlagahöfundar, Eldey með Harald Thorlacíus, bróður Guðna
skipstjóra á Hermóði í forystu, Andey þar sem Jóhannes Halldórsson
var skipstjóri og Njörður, þar var Brynjólfur Jónsson skipstjóri. Þá
komu Dalvíkurbátamir Hannes Hafstein, Bjarmi og Auður og frá
Ólafsfirði Einar Þveræingur og Haukur. Á Dalvík sá Tryggvi Jónsson
um afgreiðslu á fiski, en þeir nafnar frá Hrísey vigtuðu og mátu
fiskinn.
Löndun á fiski úr bátunum yfir í Eldborgina fór þannig fram að
bátarnir lögðust utan á hana, fiskurinn var settur í trékör er hífð voru
yfir í hana með bómu og spili Eldborgar, landað þar á vigt er komið
hafði verið fyrir á þilfarinu. Þar tóku þeir nafnar við, vigtuðu og
mátu fiskinn. Eftir það var karið híft niður í lest þar sem við hásetar
tókum við því og lögðum fiskinn út í stíur og steisa, ísuðum svo yfir.
ísingunni stjómuðu Loftur Halldórsson stýrimaður og Guðmundur
Bachmann háseti.
Það tók um það bil viku að ferma Eldborg af cirka tvöhundruð
tonnum af fiski - og ís. Meðan við vomm að fá í skipið var veður
afbragðs gott, eins og oft er í Eyjafirði á vorin. En þar kom að fermingu
lauk og haldið skyldi til Þýskalands, lestarlúkur vom skálkaðar,
bóman felld og tollafgreitt.
Áður en landfestum var kastað fór Þorsteinn Valdemarsson
hreppstjóri og kaupfélagsstjóri með okkur háseta upp í útibú Kaup-
félags Eyfirðinga í Hrísey og seldi okkur vinnuskó, stígvél, vinnubuxur
og vinnugalla. Þetta varð allt að kaupa út á skömmtunarmiða.
Þorsteinn, þessi höfðingi, sá nú í gegnum fingur með þetta og kom
það sér vel á síldinni um sumarið. Hafi hann sæll gjört.
Þá er best að gera grein fyrir hverjir voru í áhöfn Eldborgar í þess-
ari ferð:
Skipstjóri: Gunnar Ólafsson 26 ára, Borgarnesi.
Stýrimaður: Loftur Halldórsson 46 ára, Akranesi.
1. vélstjóri: Arthur Ánes 46 ára, Reykjavík.
2. vélstjóri: Jón Pétursson 28 ára, Reykjavík.
Bryti: Guðlaug Magnúsdóttir 22 ára, Ártúnum Rangárvallasýslu.