Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1929, Blaðsíða 24
GANÖUR TUNGLS OG SÓLAR A Í8LANDI.
í þriðja dálki hvers mánaðar, sem heíir yíirskriftina »t í h« (tungl
i hádegisstað), og i töblunni á blaðsiðu (17) er sýnt, hvað klukkan er
eftir íslenzkum meðaltima, þegar tunglið og sólin eru í hádegisstað
í Reykjavík. En vilji menn vita, hvað klukkan sé eftir islenzkum
meðaltíma, þegar tunglið eða sólin eru í hádegisstað á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu«
á Reykjavíkurtölunni. Verður hún — 4 mínútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 mín. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavik; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 mín. og 5. júlí er sól i hádegisstað i
Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er því tungl i hádegisstað i Flatey
kl. 6 15 f. m. (6 11 + 4 min. = 6 15).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl í hádegisstað, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavik. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig,
norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvík stendur
á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitif (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólarlagsins i Rvík,
en dregin frá sólaruppkomutimanum, nema breiddarleiðréttingin sé
negatíf (—), þá er það öfugt.
Dæmi: Sólargangur 8. maí á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2*/i stigi norðar en Rvík.
Penna dag er sólargangur í Reykjavik 17 st. 29 mín. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2*/> stig norður og sólargang 17 st. er + 23
mín. en fyrir 18 st. + 30 mín. og fyrir 17 st. 29 min. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 26 min. Lengdarleiðréttingin er — 24 mín.
í Reykjavik...........su. 3 41 sl. 9 10
Breiddarleiðrétting . — 26 +26
Lengdarleiðrétting . — 24 — 24
í Raufarhöfn . . . . su. 2 51 sl. 9 12
Annað dæmi: Sólargangur 20. nóv. i Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stigi vestar og 1 */* stigi norðar en Rvik. Sólargangur i Reykjavik
er 5 st. 56 min.
í Reykjavík...........su. 9 15 sl. 3 11
Breiddarleiðrétting . +14 — 14
Lengdarleiðrétting . +4 + 4
í Flatey..............su. 9 33 sl. 3 01
(22)